Bluetooth er framtíðin, þráðlaus framtíð í þokkabót og fyrsta tækið sem notar Bluetooth staðalinn er komið hingað í mínar hendur. Þetta er handfrjálsbúnaður fyrir Ericsson GSM síma og hann er alveg þráðlaus, engar snúrur eða neitt, nema lítið stykki sem sett er á símann og svo bara heyrnartólið og þá þarftu ekki einu sinni að hafa símann í höndunum. Hefur símann bara í töskunni eða eitthvað en hefur tækið í eyranu og ekkert mál. Svo er hægt að kaupa móðustöð sem er ekki alveg kominn og hana er hægt að tengja við heimasímann þinn þannig að þá geturðu notað þetta litla tæki við alla símana sem þú átt. Magnað apparat!

Leave a Reply