Fékk í dag sent notendanafn og lykilorð inná Íslendingabók. Þetta er stór sniðugt apparat og sá ég strax að ég er skyldur öllum. Svona af vinahópnum var ég skyldastur Jóa Jökli af öllum sem ég fletti upp. Kom mér líka á óvart að ég er skyldur vinum mínum sem eiga fjölskyldur að vestan og austan sem aldra hafa stigið fæti á ættaróðöl mín í Borgarfirði, Húsafelli og á Reykjanesi. En lausgirt var þetta nú allt saman og því er þetta svona.
Af frægu fólki er Þorsteinn Joð og Hilmir Snær náskyldir og þremmenningar er orð sem maður getur notað. Samt þekki ég þetta fólk ekki neitt.
Af bloggerum má nefna Tomma, Katrínu, Bíó og fleira og fleira lið.
Flest tengist þetta í gegnum Húsafellsætt en amma Kristín sem er mamma hans pabba er í þeirri ætt. Afi Guðmundur sem er pabbi afa kom svo og afi kristinn sem er pabbi mömmu var í þriðja sæti. Amma Dúna var lítið af hafa sig frammi en eitthvað þó. Þetta er sniðugur vefur og kom mér á óvart að hann var hraður í vinnslu.
Entries (RSS)
ég er spenntur að heyra hvernig ég og the Jóh’s eru skyldir…..
Það er nú ekki slæmt að vera skyldur kyntröllinu Hilmi Snæ !!
Það er nú ekki slæmt fyrir Hilmi Snæ að vera skyldur kyntröllinu mér.
hvernig erum við skyld??