Í gærkvöldi sá ég loksins Living with Michael Jackson, þáttinn sem hefur gert innkaupastjóra RÚV að hetju fyrir það eitt að hafa keypt þáttinn til sýninga.

Það var soldið merkilegt við þennan þátt hvað Michael hleypir myndavélunum nálægt sér og gaman er að sjá hvernig maðurinn lifir. Geðveikinn fannst mér hellast yfir hann smám saman í þættinum og í lokin var han orðin kexruglaður, einhvern veginn varð hann klikkaðri og klikkaðri.

Eitt sem mér fannst merkilegt er að mér fannst hann ekki eins skemmdur í framan svona á hreyfingu að fíflast en þegar maður sér mynd af honum í glanstímariti er hann stórskemmdur í framan. Kannski hann í sínu rétta umhverfi meira. Annars er þessi maður alvarlega veikur á geði og má þar örugglega kenna að einhverju leiti fjölmiðlum en það var rosalegt að sjá hvernig hann er hundeltur af aðdáenum og fjölmiðlum útum allt og það strax frá 12 ára aldri.

Annars hef ég ekkert nýtt að segja um þennan þátt sem nú þegar hefur ekki verið tekið fram.

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

gummijoh.net is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!