Hef verið að horfa aðeins á nýju Ali G þættina sem hann gerir fyrir bandaríkjamarkað. Snilldarefni hér á ferð en ég átti einhvern veginn von á því að þetta væri staðnað og að hann væri að stappa í sama farinu eins og í gömlu þáttunum en hann er ekker að því heldur er að gera gott grín að öllu saman.
Bandaríkjamenn eru víst lítið að fíla þetta og hóta málsóknum en mér þykir þetta snilld. Borat fær stóran sess í þessu og svo er mættur nýr karakter sem er ekkert síðri en þar er þýskur tískuhommi mættur á svæðið sem aflitaðann hanakamb.
Snilldardót.
Entries (RSS)
What what is this !!!!! You try to touch eeeyyyhhh