Þá hafa Palm loks keypt sinn helsta keppinaut Handspring. Stofnandi Palm og aðalmaður hætti á sínum tíma hjá Palm þegar að 3Com keyptu reksturinn og stofnaði sitt eigið fyrirtæki sem er einmitt Handspring. Hann gerði svo samning við Palm um að nota PalmOs kerfið í sinar vélar.
Handspring gerðu alltaf betri hluti heldur en Palm í heildina, voru á undan með nýjungar og PalmOS kerfið almennt blómstraði í vélum Handspring manna á meðan Palm vélarnar sjálfar voru luralegar og almennt klunnalegri.
Það verður gaman að sjá hvað gerist með Handspring menn innanborðs hjá Palm.
Entries (RSS)