Prufaði aðeins sms bloggið í dag. Hrafnkell og Már eiga heiður skilin og gott klapp á öxlina skilið fyrir þessa snilld. Býð þeim pottþétt uppá bjór ef ég hitti þá á förnum vegi. Veit reyndar ekki hvernig Hrafnkell lítur út en því má kippa í liðinn.
Þetta sms blogg er virkilega sniðugt. Þarf aðeins að lesa betur hvernig það virkar að framkalla Íslenska stafi og þarf að læra hvernig maður sendir nokkur sms til að fá eina stóra færslu. Strætóferðir heim úr vinnu eru kjörin vettvangur fyrir þessi blogg ásamt mörgum öðrum tækifærum. Það mætti eiginlega segja að sms blogg væru hálfgerð tækifærisblogg. Maður bloggar svona augnablikið held ég því maður þarf ekki að bíða eftir því að komast í tölvu.
Entries (RSS)