Helvítis tölvudót.
Ég hugsa að þetta sé eitthvað bull í sambandi við SoundBlaster Live hljóðkortið mitt og VIA kubbasettið á móðurborðinu mínu því að í hvert skipti sem ég keyri upp Winamp eða Itunes fer tölvan að haga sér svona skringilega.
Öll önnur keyrsla er bara nokkuð spök og góð. Hitavandamálið er ekki neitt vandamál þar sem hitinn er bara ekkert mikill. Svo er ég búinn að defragmenta öll drifin. Búinn að taka til í services og slökka á því sem að ég tel mig geta lifað án.
Einhverjar aðrar hugmyndir?
Entries (RSS)
format c:
hehehehehe helst ekki konni. Það var gert fyrir mánuði síðan!
Þetta er bara eitthvað helvítis problem á milli Sb Live! kortsins og móðurborðsins. Ég neita að trúa öðru. Skv. google er þetta algengt.
Ætla að prufa eitthvað af þessum fixum sem að fólk er að tala um á netinu, ef það virkar ekki verður bara eldri Soundblaster settur í.
Prófaðu að setja enable á eftirfarandi BIOS-valmöguleika:
15-16MB memory hole
Ef það virkar ekki geturðu prófað að setja disable á þessa:
CPU to PCI write buffer
PCI delay transaction
Prófaðu einn í einu til að byrja með en svo tvo og alla ef það virkar ekki.