Augað:

City of God er ein besta mynd sem ég hef séð í ansi langan tíma. Ofbeldið er kannski oft einum of en því miður er raunveruleikinn þarna svona. Merkilegt að sjá ofbeldið taka öll völd þegar fólki er hætt að vera sama.

Eyrun:

Heroes to Zeros, nýjasta plata Beta Band er svo að gera sig í mínum eyrum að það mætti halda að Belle & Sebastian hafi verið að gefa út eitthvað nýtt. Ekkert annað hefur komist að í spilaranum, hvorki þegar ég er heima eða á ferðinni með Ipodinn. Þessi diskur er alveg málið. Beta Band ættu fólk að þekkja úr High Fidelity en þar fá þeir góða umfjöllun.

Andinn:

Kláraði The Da Vinci Code eftir Dan Brown um daginn. Bókin er ekkert smá góð, full af skemmtilegum gátum og var ég liggjandi undir sæng í fósturstellingunni, emjandi um af spennu. Merkilegt að fara í háttinn og byrja að lesa og fatta svo að maður gæti allt eins sleppt því að sofna þar sem vekjarinn myndi hvort eð er hringja eftir tvo tíma. Bókin nær því alltaf að halda manni í spennu og látum. Fannst lokahrinan þó full snubbótt en kannski ekki hægt að ætlast til þess að allt sé fullkomið. Veit bara ekki hvað bók ég eigi að lesa næst. Spurning um að tékka á Angels & Demons eða Deception Poing sem eru aðrar bækur eftir Dan Brown.

7 Responses to “tralala!”
  1. Við hjá Snilld.net erum nýbúin að klára Angels and Demons.. hún er á svipuðum nótum og alveg hægt að mæla með henni.

  2. Úfff já Beta band er æðislegt band….síðasti diskurinn þeirra var gargandi snilld og átti hug minn allann á tímabili. Verð að heyra þennan nýja…vúff!

  3. já úff ofbeldið er virkilega mikið í þessari mynd… er raunveruleikinn virkilega svona.. 5 ára krakkar drepandi mann og annan?!

  4. Þarna já og á þessum tíma. En ekki á litla Íslandi.

    Myndin er gerð eftir bók manns sem upplifði þetta.

  5. City of God er nefnilega snilld og The Da Vinci code er einmitt efst á leslistanum mínum :)

  6. Djöfull er ég sammála þér með Da Vinci Code…þvílík snilldar bók. Spurning um að fá sér einkanúmerið 1,1618 og bíða svo spenntur eftir bíómyndinni :)

  7. Örn Úlfar says:

    Las Angels and Demons, hún var líka ágætlega spennandi. Hún fjallar um sama gaurinn nokkrum árum fyrr. Þarf semsagt engan Einstein til að átta sig á hvort Langdon lifir bókina af. Mér finnst týpan aðeins of mikið lík Indíana Jones.

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

gummijoh.net is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!