Þórey Edda klúðrar þessu eflaust í dag og tekur 10 sætið eða eitthvað álíka. Jón Arnar er búin að klúðra þessu sömuleiðis og helvítis „strákarnir okkar” eru enn einu sinni búnir að sýna það að landslið á ekki að vera byggt á 7 leikmönnum heldur á að nýta breiddina sem er næg en þessi blessaði landsliðsþjálfari er einfaldlega óhæfur því að hann velur durta.

Ingimundur er maður sem á að spila vörn, Hólmgeirsson er framtíðarskytta sem fær aldrei séns og Atlason á að vera í liðinu pronto. Síðan hvenær er svo eðlilegt að leikstjórnandi liðsins sé spilandi þjálfari í hinni frábæru Austurrísku deild? Ragnar Óskarsson svo skilinn eftir heima? Strákur sem að getur með hraða sínum farið fram hjá tveimur Kóreubúum, snúið þá niður og skotið sláinn inn, og það með einni hendi.

Ég heimta tafarlausrar afsagnar landsliðsþjálfarans í handbolta.

4 Responses to “helvítis ól”
  1. Gummi góður (það er að segja Jóh ekki Gumm)

  2. Talaðu nú við Einar vin þinn og spurðu afhverj hann er ekki í liðinu. Gummi lagði hann í einelti og var frekar leiðinlegur við hann er sagt, meira að segja það leiðinlegur að “strákarnir okkar” fannst nóg komið. Einar mun ekki ekki vera þarna fyrr en Gummi hættir…. fá þennan Gumma burt, hann heldur of mikið uppá valsmennina sem er ekki góður kostur í dag

  3. Þórey klikkaði sko ekki!!!

    Enda alvöru stúlka…

  4. Svo má ekki gleyma Loga Geirs sem sá sér ekki fært að spila undir hans stjórn…

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

gummijoh.net is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!