Ég og Dóri héldum áfram þeim skemmtilega sið okkar sem byrjaði þegar við fórum tveir saman á Bridget Jones Diary 2 og fórum á enn eina stelpu myndina í gærkvöldi.
Alfie með Jude Law varð fyrir valinu og GUÐ MINN GÓÐUR HVAÐ HANN ER SÆTUR. Hvorugur héldum vatni og urðum alveg brjálaðir þegar að hléið kom því að við vorum alveg dolfallnir.
Þegar það kom ungabarn uppá skjárinn heyrðist ooohhhhh í öllum salnum nema mér og Dóra þar sem við vorum einu strákarnir þarna inni sem héldum ekki í höndina á hvorum öðrum á meðan myndin var í gangi.
Annars er þessi mynd ekkert spes, hún er ekki um neitt þannig lagað. Jude Law er flottur og það er fullt af sætum stelpum þarna en þetta er engin bíómynd.
Entries (RSS)
Erum við að tala um að Gunna og Jói eignist tengdason eftir allt saman?’??
klárlega..þú hefðir átt að sjá hvað þeir eiga saman…yljar yngismeyjum um hjartaræturnar, manstu Gummi þegar trommarinn í Skítamóral spurði hvort sætið við hlið þér væri laust og þú sagði “naha! ég er frátekinn” og svo horfðiru blítt í augu Dóra…