Kláraði að horfa á Garden State í gærkvöldi. Ég held að ofvirkni og athyglissýki sé að ná mér loksins 24 ára gömlum manninum þar sem ég nenni varla að horfa á bíómyndir í einni atrennu þessa dagana. Meira að segja sjónvarpsþættir í lengri kantinum fá að finna fyrir STOP takkanum, skelli bookmark á hvar ég var og Xboxið resumar þar sem frá var horfið þegar ég ýti á PLAY næst.
En að myndinni,
Garden State er skrýtnasta en umfram allt ein sú skemmtilegasta mynd sem að ég hef séð lengi. Ekki sú skemmtilegasta því að hún er svo ógeðslega fyndin eins og t.d. Anchorman en hún er bara steikt og svo frábærlega vel leikin. Eitt sem að skellir myndinni svo enn hærra er hreint frábært soundtrack sem fær að njóta sín ágætlega í myndinni. Þetta er lítil og einföld mynd, engin stór nöfn sem hægt er að nefna þannig lagað nema Natalie Portman og Ian Holm. Myndin er um ungan leikara Í LA sem að þarf að fara heim til sín þegar að mamma hans deyr, hann hefur ekki farið heim í níu ár og því allnokkrar beinagrindur sem hann hafði skilið eftir sem að hann þarf að takast á við. Það hjálpar lítið að hann hefur verið á geðlyfjum sem að pabbi hans doktorinn hefur látið hann taka frá barnsaldri.
Mæli sterklega með þessari og endilega skoðið trailerinn, fínn trailer og svo byrjar hann á laginu Such Great Heights með Postal Service sem er bara geðveikt. Varð smá súr þegar að Iron & Wine útgáfan af laginu kom svo í myndinni þar sem mér finnst hún svo miklu síðri.
Entries (RSS)
Svo má ekki gleyma því hve rooosalega sæt Natalie Portman er. Án efa einn af betri hlutunum við myndina.
Það er hárrétt hjá þér Einar, en það þarf nú varla að benda á það
“If you do not like this song, I will fight you!”
“You are a stinky whore who hangs out with pirates!”
“Your ass…I like it, you sit on it and I want to be friends with it.”
Ah yes, Garden State is one of my favorites of 2004. That and Eternal Sunshine of the Spotless Mind and Closer. I love Zach Braff on Scrubs, so it wasn’t hard to love this movie.
And Anchorman, as quoted 3 times above, didn’t love it, but it was funny as hell in some parts. I hope you got to see the special features…hehehe…
You need to see Napoleon Dynamite. Funny funny stuff…
And Jude Law….mmmm…Jude Law…I have not seen Alfie…but I cannot wait too **drool**
Veistu ég rambaði á trailerinn á þessarri mynd fyrir nokkru síðan og lofaði sjálfri mér að sjá hana. Leist ótrúlega vel á hana einmitt og ánægð að heyra að hún standist væntingar. Hlakka til og vona að ég nái að grafa hana upp hérna á videoleigum Danmerkur
Ég hélt þessi rýni væri um „The Constant Gardener“. Vá hvað mér var létt þegar ég komst að því að svo var ekki!
Hvernig þú fórst að því Gaui að kommenta á færslu frá 2005 finnst mér magnað.