Ef það er eitthvað sem fer í pirrurnar á mér við annars frábæran flutning minn frá PC yfir á Mac að þá er það tvennt sem að stendur uppúr.

FTP forrit á Mac eru miklu verri en á PC. FlashFXP hefur höfuð og herðar yfir allt það sem er í boði á Mac. Sama hvað ég hef prufað, Interarchy, Transmit, Fetch eða Cyberduck að þá er ekkert af þessu jafn gott og FlashFXP eða bara Filezilla á PC. Fáránlegt að tengja sig inn á PC vélina mína í gegnum Remote Desktop til að nota FlashFXp til að gera suma hluti.

Annað mál á dagskrá er blessað móðurmálið. Sama hvað tautar og raular að þá virkar Firefox ekki. Ég get ekki skrifað ð, þ og ö í Firefox nota bara Camino á meðan sem er mjög góður en samt ekki FireFox. Ástæðan er held ég sú að vélin mín er keypt úti og íslenskan er höxuð inn í stað þess að ég hafi keypt 15.000 króna staðfærsluna frá Apple á Íslandi. Það á ekki að refsa manni fyrir að kaupa tölvuna annarsstaðar. Linux vélar, Windows vélar og hvaðeina virka á hvaða tungumáli sem er, hvar sem er. Rugl og vitleysa.

3 Responses to “Switch”
  1. Akkuru ekki bara Safari?

  2. Já, ég nota Safarí og það er bara hið besta mál - ekkert vesen á þeim bænum!

  3. Safari styður ekki dhtml sem að t.d. vefumsjónarkerfið mitt notar fyrir nokkra menua og það er handónýtt.

    Camino er frá sömu og gera Firefox og það er brill.

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

gummijoh.net is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!