Stjörnustríðs nördið í mér er búið að vera í dvala núna í nokkur ár. Núna fer þessu að ljúka og ég er bara orðin ógeðslega spenntur að sjá Svarthöfða aftur á hvíta tjaldinu.
Á miðvikudaginn var merkilegur dagur en þá voru 28 ár síðan að Star Wars: Episode IV A New Hope var sýnd í fyrsta skipti. Ansi langur tími til að klára sex myndir en vonandi þess virði núna rétt bráðum. Orðið á götunni gagnvart þessari mynd er það að hún sé dökk, dekkri en Empire Strikes Back. Kevin Smith (Clerks, Mallrats,Chasing Amy, Dogma….) er búinn að sjá hana og gefur henni mjög góða einkunn og það er bara til að gera þetta enn meira spennandi. Revenge of the Sith er líka búin að fá PG-13 miða á sig í Bandaríkjunum sem bendir til blóðsúthellinga og ofbeldis af ágætis stærðargráðu, ekki bara vélmenni sem ligjga í valnum þá.

Entries (RSS)
Er þetta Sigurjón Kjartansson þarna í miðjunni?
Man þegar þú kallaðir hann alltaf dökkhöfða, en ekki svarthöfða!
Það verður spennandi að sjá Gremlins með geislasverð í nýju myndinni.
I am already prepared! SEE?!!
Hahahaha… Yep, you too can own a light saber for $120. $120 I don’t have…sigh…