Loksins nýtt tóndæmi. Hef ekki alveg verið í blogg stuðinu enda búið í ferðatösku í viku og það innanlands. Maður getur látið sig hafa slíka hluti ef maður er í útlöndum.

Hef verið að hlusta fáránlega mikið á Anthony & The Johnsons núna en Antony þessi er breskur klæðskiptingur sem að býr í New York. Hann og bandið hans stefna á að koma til Íslands í sumar sem verður að teljast frábært þar sem þetta er akkúrat það sem að mér finnst vanta hingað til lands. Eins gott og það er að fá öll þessi stóru bönd í Egilshöll og svona að þá finnst mér vanta meiri kraft í að koma með indie bönd á Nasa og svona minni staði.

Mæli með að fólk kíki á Antony & The Johnsons

Antony & The Johnson – Fistful of Love

Comments are closed.