Á laugardagskvöldið var það handsalað við Vidda að við skyldum fara á forsýningu Deuce Bigalow kvöldið eftir. Það var svo efnt í gær. Ástæða þess að ákveðið var að fara á þessa mynd var sú að Viddi var mjög viss um að þetta væri meistaraverk og ég var svo óssammála honum að ég ætlaði að láta mig hafa það að fara á hana bara til þess að sanna mál mitt. Þetta væri ekki frásögu færandi nema hvað að Vidda fannst svo myndin ömurleg, en ég skemmti mér konunglega. Svo það er eins gott að gera aldrei neinar væntingar.

Ármúlamafían er að verða einhver þéttasti og sterkasti hópur á landinu og búið er að plana tvö kvöld í þessari viku.

2 Responses to “Deuge Bigalow European Gigalo”
  1. Verðum við ekki að stofna Kvikmyndaklúbb Ármúlamafíunnar?

  2. Erum við orðnir svo nánir á þú ert farinn að kalla þig Vidda?

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

gummijoh.net is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!