Það er háalvarlegt mál hér í uppsiglingu. Ég hef eftir besta og mesta megni reynt að halda mínum peningum í hverfinu. Versla í Eymundsson í Mjódd og ÁTVR í Mjódd og þegar ég þarf prinsessukjól að þá veit ég hvert skal halda en það er Mjóddinn.
Núna er enn alvarlegra mál í gangi sem kom svolítið aftan að mér og stakk sér í gegnum radarinn hreinlega en það er að videoleigan hérna útí Breiðholtskjör er hætt.
Núna í fyrsta sinn síðan ég man eftir mér er engin videoleiga á svæðinu. Einu sinni voru þær þrjár (tvær í Breiðholtskjör og ein uppfrá hjá Leirubakka) en núna er hér engin leiga. Ekki að leigan hafi verið að mala gull útaf mér og að ég þurfi svona á henni að halda, þetta er meira bara eitt af þessum atriðum sem eiga að vera á hreinu. Það hlýtur einhver af þessum nýútskrifuðu viðskiptafræðingum sem að hvergi fá vinnu geta tekið við þessum rekstri og látið þetta ganga upp, það eru til videoleigur sem að virka og þessi getur alveg verið ein af þeim ef að rétta fólkið fæst. Það þarf bara að kenna starfsfólkinu að það teljist ekki eðlileg rýrnun að fá sér nammi úr bland í poka borðinu og setja fleiri fastar reglur.
Það er ekki nóg að benda á að það sé videoleiga niðrí Mjódd, það er bara full langt þegar maður er í video fíling á sunnudegi. Ég vil geta labbað út í eina og hálfa mínutu eins og ég hef allta gert í stað þess að fara af stað á Lafðinni.
Þetta blogg verður ritstýrt og allir þeir sem ætla að nota tækifærið til að hallmæla Breiðholti geta átt von á því að athugasemdum þeirra verður eytt og þeir munu fá fá heimsókn frá Junior og Henry.
Entries (RSS)
Jamm, ég er sár. Ég flyt í hverfið og um leið hverfur Videóleigan og Pizza 67 hættir.
Vertu ekkert að taka brotthvarf pizza staðarins nærri þér. Það hefur ekki veitingastaður gengið þarna síðan að Arnargrill var og hét og það er langt síðan að það var.
I feel ya man! Kannast við sársaukann, lenti í þessu að mín eðal hverfisleiga (TRÖLLAvideó) flutti, tók mig reyndar nokkra mánuði að komast að því
i feel your pain, en kanski að síminn lagi þetta vandamál fyrir þig með Video On Demand?
Þegar P67 hvarf þá var lengi miði í glugganum um að nýjir eigendur myndu opna 7. október, töluvert eftir sjöunda reyndar.
Ég má ekki fara út fyrir landsteinanna og þá er allt komið í hass þarna heima. Með þessu áframhaldi þá kem ég brjálaður til baka og þá verður sko sópað til.
Eina ástæðan fyrir því að Arnargrill virkaði var vegna þess að þeir seldu eiturlyf undir borðið.
En annars er búin að vera þarna fiskbúð í mörg ár og bakarí og ekki er verið að reka þær verslanir í mínus.
Jæja langt síðan maður hefur bloggað. Mest lítið að frétta búið að vera fokking geðveik vinnu törn í gangi, Var að klára DVD disk sem ég var að gera fyrir Írafár. Átti upphaflega bara að vera smá TV þáttur frá danmörku í sýningu í TV. Þróaðist síðan út í að vera 90 mínútna mynd… …eða svona mjög langt homevídeó, mikið klippt og unnið á þeim standard. Hrátt jobb sko.
Ég var að klára þetta og er að horfa á afraksturinn núna til að vera viss um að masterinn sem fer í fjölföldun sé réttur. Leiðinlegt að panta 6000 eintök af gölluðum disk. Ég er þó hér um bil viss um að ég er með einhvernar innslátta eða stafsetningavillur í textun eða credits.
Ég var að átta mig á því áðan að ég er búinn að vera vakandi síðan einhverntíman á laugardaginn, fyrir utan að leggja mig í 2 tíma í dag og nokkrum sinnum smá nappar með tölvan var að rendera. Það er náttúrulega bara rugl. Og nei, ég er ekki á lyfjum. Ekki einusinni að drekka kaffi. Góðan slatta af BlackMagic þó. Merkielgt hvað maður getur samt haldið lengi áfram í svona handavinnu, … ..kláraði sko creatívu vinnuna á aðfaranótt sunnudags, áður en heilabatterýið kláraðist. Svo lenti ég í því í nótt þegar ég var í hljóðsetningu að ég ætlaði að skrifa smá texta til að lesa inn, en ég bara gat ekki búið til setningar. Varð því að keyra heim og ná í umslag sem ég hafði krotað á fyrsta draft af þeim texta dögum áður. Skrýtið, samt því ég hef ekki verið neitt syfjaður.
En jæja. Hmm.
Ég virðist að minnsta kosti geta búið til setningar núna. Þannig að það er yfirstaðið eftir þennan tveggja tíma blund.
En já…
Ég bara minni á að ég hef alltaf rétt fyrir mér.
Ég segi nú bara, sem betur fer var ég búinn að selja hlutabréfin í vídeó leigunni.
Gummi! gagnvirkt sjónvarp.
Guðjón nördið þitt þetta er lengsta komment ever sem ég hef á ævinni séð ahahaha;) Nennir ekki að kommenta svona mikið á minni síðu hah?? hehe
I’m not following,
but…
Hehehe…
Night night
æh Guðjón minn - gaman að heyra í þér
xxx frá Leeds
Mig langaði bara til að taka það fram að ef hann faðir minn hefði ekki selt videoleiguna sem hann opnaði fyrstur manna í Breiðholtskjöri þá væri ég nú stoltur erfingi hennar…og ég myndi auðvitað láta hana ganga, enda með einstakt peningavit…
…kannski væri ég orðin harðgift núna ef ég ætti hana? Þetta hljómar svo vel…Stoltur erfingi…en ef einhver vill lifa í fortíðinni þá er ég semsagt enn ógift…
…Ég á ennþá Superted sem hann faðir minn tók með sér handa mér við söluna…þú getur fengið hana lánaða? Merkt Breiðholtsleigunni..