Í dag er iPoddinn frá Apple 5 ára. Magnað tæki sem hefur breytt þankagangi fólks um allan heim. Við hlustum og umgöngumst tónlist á allt annan hátt en við gerðum.

Það er auðvitað ekki allt iPod að þakka en stór hluti að einhverju leiti, það er á hreinu. Næsta mál væri að fá iTunes Music Store á Íslandi. Tonlist.is notar WMA formatið sem virkar ekki á iPod. Ég hef aldrei skilið þá leið að notast við format sem stærsti spilari í heimi getur ekki spilað. Tilhvers að leika bara við 10% af markaðnum?

Ég hef átt og á tvo iPodda. Sá fyrsti var 3.kynslóðarstykki, 20gb en virkar enn þrátt fyrir að hafa farið í sturtu. Hann spilar lög og hleður sig en ég get ekki tengt hann við tölvu lengur þannig að þessi 19gb sem á honum eru verða að duga. Hann nota ég í Hertoganum með iTrippi.

Betri iPoddinn minn er svo 5.kynslóðar 20gb iPod með video fúnksjon. Virkar vel og ekkert út á hann að setja.

Til hamingju með daginn.

4 Responses to “iPod”
  1. Tonlist.is notar WMA formatið sem virkar ekki á iPod.

    Tekið af : http://www.tonlist.is/News.aspx?NewsID=788

    “Þeim nýjungum sem var bætt við á árinu (2005) féllu í góðan farveg og má þar helst nefna yfirrærslu laga yfir á iPod og aðra stafræna spilara…..”

    Peista það ekki dýrar en ég kóperaði það.

  2. Bíddu bíddu… er hann ekki 60 GB sá stóri.

    Í fyrra gerði ég ritgerð um Tónlist.is og tók smá spjall við Stefán Hjörleifs út af þessu og ég spurði mikið um þennan litla Ipod stuðning hans, enda Ipod maður sjálfur. Hann svaraði mér, en ég skil þetta ekki ennþá.

  3. Takk addi fyrir þetta.

    En hvernig virkar þá yfirfærslan? Væntanlega encoda þeir lögin úr wma yfir í mp3 sem þýðir að það tapast gæði því það er verið að decoda og encoda til baka lossy format.

    Tilgangslaust að borga 99kr fyrir lag sem þarf svo að tjónka með og tapa gæðum til að geta notað í sinni græju.

  4. Rétt Gummi…. importar lögunum fyrst inn í Itunes.

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

gummijoh.net is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!