Í gær var stærsta stundin á minni ævi sem launamaður. Ég fór á staðinn sem öllu skiptir, staðinn þar sem hinn heilagi kaleikur er geymdur. Staðurinn sem læknar fólk með einhver mein og lætur allt púlið og ruglið í vinnunni vera þess virði.

Um hvað er drengurinn að tala?

Jú, þetta liggur í augum uppi. Ég fór í vettvangsferð í Breiðholtssímstöð. Flottustu og bestu símstöð í öllum heiminum.

7 Responses to “BREI”
  1. Maður er að heyra að faxgáttin sé geymd þarna !

    Og símstöðin nái alveg frá mörkum Kópavogs og jafnvel upp í Mosfellsbæ.

  2. Komstu á Imprezunni með gylltu felgunum?

  3. Einhver duglegur breiðhyltingur á hana. Myndin er tekin með því að stinga hendinni upp um topplúguna á Hertoganum og ýta á takka.

  4. Ég hélt að þetta væri í útlöndum þetta er svo fallegt…

  5. Já þetta er falleg símstöð enda þjónar hún Árbænum

  6. tjah ég get nú sagt ykkur það að hún er falleg þessi símstöð og hvers vegna spyrjið þið jafnvel og það get ég sagt ykkur…
    Eðvarð Atli málaði hana!

    þar hafið þið það

  7. Er ekki sveitasími í Breiðholtinu ennþá?

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

gummijoh.net is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!