Kanill er eitthvað mesta bull sem ég hef keypt. Mig vantar nokkur korn til að blanda við sykur til að hafa með grautnum og þarf að kaupa 500 grömm af þessu forláta kryddi.

Það er ekki eins og kanill sé notaður með öðrum hverjum rétti á þessu heimili.

Ég myndi verða ríkur ef ég myndi framleiða og selja sykur og kanil blöndu í neytendavænum umbúðum. Ég nenni samt ekki að fara í þannig bissness.

12 Responses to “kanill”
  1. Jói says:

    Og þess má geta að ég vann spurningakeppnina: “Á að setja salt í grjónagraut?” þar sem Gunna hressa var dómari.

  2. Inga says:

    Hvað með kanilsnúða .. það má nú eyða einhverjum grömmum af kanil í þá!

  3. Gummi Jóh says:

    Ertu að bjóða þig fram Inga. Ef ég gef þér nokkur korn og tómt box fæ ég þá fullt box til baka af volgum og ilmandi snúðum?

  4. Það er hægt að nota kanil í kaffi, í kanilsykur, kanilsnúða og kanilrúllur. Sumir nota hann í kökur og indverskan mat.

  5. Gummi Jóh says:

    Mér finnst ógeð að setja kanil í kaffi, ég keypti kanilinn til að gera kanilsykur til að setja út á grautinn sem var í kvöldmat. Snúða nenni ég ekki að baka því jói étur þá alla.

    Hér verður grjónagrautur matinn þangað til að þessi 500 grömm klárast. Sem betur fer finnst mér grjónagrautur góður.

  6. Í DK er hægt að kaupa svona tilbúna kanilblöndu. Gasalega praktískt.
    Skal bara senda þér svoleiðis.

  7. Örn Ingi says:

    Kannski að koma skilaboðunum áleiiðis til Togga.
    það er verið að selja miða á tónleika með The Cure 18.02.07 i Forum í Köben
    núna byrjaði klukkan 10 í morgun.
    linkur hér
    http://www.billetlugen.dk/?eid=7732&lng=

  8. Anna says:

    Danir nota líka kanilsykur og smjör út á hafragraut..

    Getur skipst á að elda grjónagraut og hafragraut, aðeins meiri fjölbreytni.

  9. viddi says:

    Mjög gott partítrikk að gleypa “dry” kanil. Gæti orðið næsta æðið hans Ara þegar koníak í nefið gengur yfir…eftir svona 7 ár.

  10. Guffi says:

    Ótrúlega mörg komment á færslu sem ber fyrirsögnina ,,kanill” og verður ekkert mikið merkilegri eftir því sem líður á textann :)

  11. Ahh já ég man núna, einhvern tíma gerðum við krakkarnir það prakkarastrik að setja kanil í dós af neftóbakinu 99. Karlinn sem átti hana var ekki ánægður.

  12. Dísa says:

    Eplakökur eru vinsælar hér í Þýðverjalandi þessa dagana. Það má nota fullt af kanilsykri í þær.

  13.