Þegar ég verð stór ætla ég að vona að ég hafi snefil af töff-inu sem Daft Punk hafa.

Á Grammy´s verðalaunahátíðnni núna á sunnudaginn var brotið blað í sögunni þegar Daft Punk komu fram í fyrsta skipti í sjónvarpi. Kanye West hefur verið að nota lagið Harder, Better, Faster, Stronger í lagið sitt Stronger sem er ágætis hippedí hopp með dans/electronic ívafi svona miðað við að ég fíla ekki hippedí hopp.

Kanye treður upp með þessu lagi sínu og á 2mín 43 sec opnast Daft Punk þríhyrningurinn og þar standa þeir svo töff og svalir að það mætti halda að himnarnir hafi opnast. Eru almennt töff og spila á futuristic hljóðfæri sem eru ógeðslega töff.

Þetta er lag fyrir helgina, það er stemmning í því.

Kanye West feat. Daft Punk - Stronger

[youtube sIfkUI5xaaM]

4 Responses to “tóndæmi dagsins”
  1. Δ

  2. Var að fara að blogga um þetta atriði. Fannst þetta mjög flott einmitt og fékk næstum gæsahúð þegar Daft Punk koma úr þríhyrningnum… en þar sem þú ert búinn að því…

  3. p.s. hvar ætli maður fái svona gleraugu? Mig langar

  4. Þeir eru að spila á lemur :) en Björk notar nokkra einmitt.
    http://www.jazzmutant.com/lemur_overview.php

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

gummijoh.net is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!