Það er þvílíkur gullmoli á ruv.is núna sem verður aðgengilegur næstu daga og er skylduhlustun fyrir alla áhugamenn um íslenska tónlist og tónlistarsögu. Freyr Eyjólfsson sest niður með gleðigjafanum Valgeiri Guðjónssyni þar sem þeir kryfja plötu Spilverksins, Sturlu.
Platan Sturla er ein af þeim plötum sem ég ofhlustaði á í fermingargræjunum mínum og fæ seint nóg af. Þvílík plata.
Entries (RSS)