Á þjóðhátíðardegi íslendinga í ár kemur út nýjasta plata Coldplay sem ber nafnið Viva La Vida. (loca?)

Colplay hafa t.d. gefið lagið Violet Hill á heimasíðu sinni sem er allt í lagi en seinna lagið sem heyrist, titillag plötunnar er aftur á móti stórgott. Eiginlega bara virkilega gott.

Ég fíla fiðlurnar í því og svo stóru bjölluna og svo er samsöngur sem í raun innsiglar það að ég fíli lagið.

Ég hlakka til að heyra meira af þessari plötu, það er ekki móðins meðal indie fólksins að fíla Coldplay en mér gæti ekki verið meira sama. Gott popp er gott popp, óháð hver flytur.

Tóndæmi dagsins er því lagið Viva La Vida. Bónus er svo video þar sem Coldplay taka þetta sama lag á MTV Movie Awards á sunnudaginn.

Coldplay – Viva La Vida

3 Responses to “tóndæmi dagsins”
  1. katrín says:

    ojj

    mér finnst coldplay og james blunt alveg eins

  2. Gummi Jóh says:

    Já og mér finnst Biggie og Luther Vandross vera eins.

  3. Guffi says:

    Ég held að tónlistarsmekkurinn hjá Katrínu geri hana óhæfa til að dæma Coldplay. Alveg eins og ég voga mér ekki að tjá mig um þetta rabb sem hún virðist hlusta á.

  4.  
Leave a Reply