Leiðinlegt fyrir New York dúettinn Department of Eagles að hafa ekki hljómað í mínum eyrum fyrr en á gamlársdag í fyrsta skipti en lagið þeirra sem nú prýðir liðinn tóndæmi dagsins hefði án nokkurs vafa dottið í topp sæti yfir lög ársins 2008.

Svo má til gamans geta að Daniel Rossen úr Grizzly Bear er í þessari sveit.

Lagið No One Does It Like You er að detta á topplista hér og þar á netinu og ekki að ósekju. Þetta er yndislegt lag.

Hlustið bara. Reyndar er þessi live útgáfa hér af youtube betri í mínum huga, einhver óskilgreindur fílingur sem ég er hrifinn af.

Department of Eagles -- No One Does It Like You

3 Responses to “tóndæmi dagsins”
  1. Toggi says:

    VÁ!!!

    FJÖGURRA MANNA DÚETT!!!

  2. Gummi Jóh says:

    Þorgrímur, session spilarar maður. Þeir eru ótrúlegur hlutur.

    Toggi er ekki hljómsveitarnafn er það ?

  3. Toggi says:

    Tja, jafn gilt og t.d. Travis

  4.  
Leave a Reply