Afsakið bloggleysið, ég hef verið á haus í vinnu og lífinu almennt.
Depeche Mode og Pet Shop Boys voru að dæla út plötum. Hef alltaf fílað bæðin böndin afskaplega mikið. Depeche Mode eru þessir dökku og dimmu menn á meðan Pet Shop Boys gera tónlist í sama dúr en talsvert glaðlyndari.
Hvernig ætli það kæmi út ef Gahan og félagar í Depeche Mode myndu gera eina glaðlega sumarplötu um ástina og Pet Shop Boys myndu taka fyrir þunglyndið og sjálfsmorðstilhneigðina á dimmu vetrarkvöldi ?
Þangað til næst.
Entries (RSS)
Ertu þá að tala um “meira fjör” eins og Valgeir Guðjónsson sagði svo skemmtilega í kvikmyndinni Mávahlátur?
Þetta rifjar upp eitt gamalt og gott.
http://www.youtube.com/watch?v=cwdssHTfPJQ&feature=PlayList&p=868190E140656886&playnext=1&playnext_from=PL&index=33