Ég vona innilega að tónleikaröðin Manstu ekki eftir mér sé komin til að vera. Síðasta fimmtudag hóf sveitin Ensími leikinn með því að flytja plötuna Kafbátamúsik í heild sinni.

Kafbátamúsik kom út 1998 og varð strax ein af bestu plötum Íslandssögunnar. Lög eins og Atari, Arpeggiator og Flotkví eru hrikalega góð og eldist platan afskaplega vel.

Það var yndisleg tilfinning að standa í troðningnum og hitanum á Nasa og sjá sveitina aftur á sviði og heyra upphafstóna plötunnar hefjast. Hreint út sagt yndisleg stund.

Fyrir tónleikana fór ég að velta fyrir mér hvaða fleiri plötur ég væri til í að sjá og heyra fara í gegn um sömu meðferð.

Maus -- Lof mér að falla að þínu eyra

Spilverk Þjóðanna -- Sturla

Sigur Rós -- Ágætis Byrjun (tilvalið á 10 ára afmæli plötunnar)

XXX Rottweiler hundar -- XXX Rottweiler hundar

Megas og Spilverk Þjóðanna -- Á bleikum náttkjólum

Mjötviður mær -- Þeyr

Lög unga fólksins -- Hrekkjusvín

Benni Hemm Hemm -- Benni Hemm Hemm

Við þennan lista má svo eflaust  bæta við fullt af góðu dóti sem ég man ekki eftir akkúrat núna.

3 Responses to “Manstu ekki eftir mér”
  1. Ari says:

    geðveikir tónleikar.

    ég held að maus tónleikar séu planaðir, veit ekki með hitt.

  2. GesturMagg says:

    Glugginn hennar Kötu með Vilhjálmi Vilhjálmssyni

  3. jóhann says:

    Maður með mönnum – Vinir Vors og blóma. Þyrfti samt helst að vera í óperunni eða álíka tónleikastað.

  4.