Author Archive

Mér finnst stundum eins og ég sé andamamma með tvo unga í eftirdragi í nágrenni tjarnarinnar. Ungarnir tveir heita Arnar og Hlynur.

Í gær þreif ég baðið, vaskaði upp, eldaði ítalskar kjötbollur sem voru RUGL og skellti í eina vél.

Tölum meira um þessar kjötbollur. Ég var í búð í gær að reyna að fá hugmyndir að mat. Ég ákvað að gera þessar kjötbollur bara útí bláinn án uppskriftar og þær voru hrikalegar góðar. Arnar hélt eflaust að ég væri þroskaheftur þegar ég settist niður inni í stofu með skál fulla af nautahakki, eggi, hvítlauk (skiptir miklu máli), basil og pipar, brauðmolum ásamt leynikryddinu og byrjaði að mauka þessu saman með berum höndum.

Steikt á pönnu og látið malla með tómötum, meira kryddi og parmsean skellt yfir. Betra en kjötbollurétturinn á Ítalíu og vel það.

Comments 2 Comments »

Hljómsveitin Dikta er ein af frábæru sveitunum sem hafa komið fram á sjónarsviðið hin síðari ár. Platan þeirra Hunting for Happiness er frábær og má þar sérstaklega nefna þátt söngvarans.

Haukur Heiðar er með brilliant rödd, svo einfalt er það.

Hér má sjá Hauk Heiðar í þætti Jóns Ólafssonar að taka lagið Breaking the waves í skemmtilegri útgáfu.

 

Comments 1 Comment »

Hjartað í mér er byrjað að slá aftur, lungun eru byrjuð að fyllast af fersku lofti og hugurinn er frjórri en nokkru sinni fyrr. Lífið er einhvern veginn allt að færast til betri vegar og ekki hægt að segja annað en að það sé bjart yfir manni þessa dagana.

Afhverju?

Jack Bauer er komin aftur og tveir tvöfaldir þættir eru komnir og þetta byrjar vægast sagt vel. 24 eru þættir sem fá fullorðna menn til að pissa á sig af spenningi og fullorðnar húsmæður til að fórna öllu eins og eldamennsku, þvotti og straujun bara til að sjá sinn Jack Bauer.

Comments 2 Comments »

Lunganum af föstudagskvöldinu eyddi ég í mínum gamla grunnskóla, Breiðholtsskóla við embættisstörf.

Ég sat eins og kóngur í hásæti mínu að dæma söngvakeppni, enda formaður dómnefndar ásamt Idol fólki og einhverjum Togga. Allir grunnskólar í Breiðholti voru þarna saman komnir í undankeppni um hvaða skóli myndi fara í Söngvakeppni Samfés. (Held að ég fari rétt með nöfn og annað hér)

Samtals voru þetta níu atriði, frá öllum skólunum nema Hólabrekkuskóla sem ekki sá sér fært að senda inn atriði í ár, væntanlega vegna ágreinings um lagaval.

Efstu þrjú sætin voru í raun frekar auðveld fyrir dómnefndina. Það voru tvö lög frá Ölduselsskóla og eitt frá Seljaskóla í efstu sætunum og stelpa frá Ölduseli lenti í fyrsta sæti.

Ég fékk fullan sal af krökkum til að öskra heróp þegar ég sem formaður dómnefndar var að kynna úrslitin. Ég sagði þeim að Breiðholt væri auðvitað besta hverfi í heimi og þau ættu ekki að láta neinn segja sér neitt annað því annað væri kjaftæði. Það er gott að vita af því að það eru hundruðir krakkar þarna úti sem finnst það sama um Breiðholt og mér.

 

Comments No Comments »

Maður hefði kannski átt að blammera Hlustendaverðlaun FM95,7 aðeins meira núna. (Hér og hér)

Nú er svo komið að lokaatriði verðlaunanna sem verða í Borgarleikhúsinu í lok mánaðarins og sýnd í beinni útsendingu á Sirkus verður ekkert slor.

Lokaatriðið þar sem engu verður til sparað verður Toggi ásamt hljómsveit og Drengjakór Breiðholts.

Ég sem sagt mun koma fram á hátíðinni sem ég er búin að blammera. Örlögin eru svo skemmtileg stundum.

Núna eru þetta mögnuð verðlaunahátíð þar sem allur vilji er til að gera þetta sem glæsilegast. Það toppar auðvitað ekkert Toggann og Drengjakór Breiðholts.

Comments 6 Comments »

Valur Gunnarsson, sá ágæti drengur er 25 ára í dag. Í gær hélt hann uppá afmælið sitt í Norðurfellinu og húsið var troðfullt. Afmælið var frábært og vel það. Það klikkar ekki að öll partý sem Valur hefur haldið þarna hafa verið frábær. Mikið af góðu fólki og veitingar sem toppa allt. Veitingarnar skrifast þá væntanlega frekar á frú Jóhönnu, mömmu hans Vals.

Til hammó með ammó Valur. Til hamingju Ísland.

Comments 1 Comment »

Í sundlaugum stendur oft við innganginn í karlaklefum að engin ábyrgð sé borin á skófatnaði og oft mælt með að gott væri að taka skónna með sér inn í klefann og setja með fötunum í geymslu.

Í minni sundlaug sem er Sundhöll Reykjavíkur er þetta aðeins öðruvísi. Þar stendur á skilti að engin ábyrgð sé borin á skófatnaði og maður eiga að taka skóna með sér inn ef maður vilji eiga þá lengur.

Í raun er manni hreinlega sagt að ef maður taki skónna ekki með sér inní klefa verði þeim bara stolið.

Sundhöllinn er annars afbragðs sundlaug. Er búin að fara núna þrisvar sinnum á fjórum dögum og þetta er fínasta laug og gott að synda í henni. Svo er líka mjög gaman að skemmta sér við það að sjá Arnar 6ára reyna að ná til botns í djúpu lauginni. Hann nær því nefnilega aldrei og kemur móður og másandi uppúr og öskrar „DJÖFULL, ég var alveg við það” og reynir svo aftur og aftur og ekkert gengur.

Hlynur aftur á móti fer bara í heita pottinn og í gufu eins og gamalmenni. Við Arnar syndum eins og selir.

Comments 5 Comments »

FM 957 hefur hneykslað mig sagði bíó á MSN áðan. Ég verð að taka undir það með honum , eins og bíó átti ég aldrei von á því að FM myndi hneyksla mig en það hefur gerst núna.

Nú stendur yfir netkosning fyrir Hlustendaverðlaun FM95,7 og allt í góðu með það. Eða hvað?

Fyrsti flokkurinn er söngvari ársins. Þar er Magni, Biggi úr Ampop, Stefán Hilmarsson, Bjarni úr Jeff Who? og Ragnar Kjartans úr Trabant. Ekkert að þessum flokki þannig lagað.

Tökum næsta flokk….

Söngkona ársins og þar má velja um Klöru í Nylon (afhverju hún bara úr Nylon skil ég ekki), Silvía Nótt, Ragnheiður Gröndal, Regína Ósk og Halla Vilhjálms. Ekkert merkilegur flokkur en allt í lagi.

Núna byrjar ruglið…

Plata ársins er mjög skrýtin flokkur en þar má kjósa Undir þínum áhrifum með Sálinni, My Delucions (á væntanlega að vera My Delusions með Ampop.) Platan kom út 2005 og ætti því ekki að vera þarna. Næsta plata er Death before Disco með Jeff Who? sem einnig kom út 2005 og ætti því ekki að vera þarna. Emotional með Trabant sem kom út snemma árs 2005 og svo Nylon með Nylon.

Er þetta eitthvað grín? Eldgamlar plötur. Ætti Sturla með Spilverkinu ekki bara að vera þarna líka?

Myndband ársins er svipað, gömul myndband í bland við eldri. Annars er íslensk myndbandagerð eiginlega ekki til lengur eftir dauða PoppTíví eins og það var. Í dag er stöðin ekki neitt neitt og Sirkus er flopp fullt af efni af framhaldsskólastiginu. Það gerir engin skemmtileg tónlistarmyndbönd lengur. Reyndar var Barfly með Jeff Who? ágætt og One með Trabant er það besta hin síðari ár. Synd að maður sér þetta ekkert nema þá á netinu.

Tónleikar ársins er fyndin flokkur. Þar má velja á milli Bubba tónleikana þann 6.júní 2006, Sálina og Gospel kórinn, Bó og Sinfó, Rockstar í höllinni og SiguRós á Klambratúni. Fyndið samansafn af tónleikum og ótrúlega mikið sem vantar þarna. Skil ekki alveg valið á þessu en þar sem þetta er FM að þá á ég örugglega ekkert að skilja þetta.

Lag ársins býður uppá Hvar sem ég fer (Á móti sól held ég), Barfly (Jeff Who? síðan 2005), Nasty Boy (Trabant, snemma árs 2005, var fáanlegt á netinu 2004), Til hamingju Ísland (Silvía Nógg) og Losing a friend (Nylon).

Nýliðar ársins er fyndin listi því þar eru Ampop sem hafa gefið út fjórar plötur síðan 2002 og eru engir nýliðar. Jeff Who? sem voru nýliðar árins 2005 kannski. Trabant sem gáfu út plötuna Moment of Truth árið 2001 og svo Emotional snemma árs 2005, Silvía Nótt og Dr. Mister og Mr. Handsome.

Þetta eru einhver mestu bull verðlaun sem að ég hef séð. Meirihlutinn af tilnefningunum eru úreldar og eiga ekki heima í þeim flokkum sem þær eru settar í. Svo eru þetta mikið allt sömu listarmennirnir. Afskaplega lítið varið í þetta.  

Comments 14 Comments »

Eins og ég er nú flottur á þessari mynd að þá get ég ekki horft á annað en drengina tvo til hliðar. Það sem þeir eru að gera vekur upp einhverjar einkennilegar kenndir sem ég á erfitt með að skilgreina.

Comments 8 Comments »

Mikið rosalega er ég ánægður með borgarstjórann minn og Breiðhylting Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson.

Við viljum engan helvítis spilasal.

Comments 1 Comment »

Egill Helgason er ekki rauðhærður, hann er ekki með krullur og hann hefur aldrei bloggað. Eða svo segir hann að minnsta kosti.

Hann segir t.d. að sögu skrifa sinna á netinu megi rekja til 1.febrúar árið 2000 sem er fimm árum áður en bloggið var fundið upp. Það að pensilín hafi verið búið til í fyrsta skipti þann 1.febrúar árið 2000 er jafn trúanlegt í mínum huga.

Þar sem bloggið er frekar nýtt er öll saga þess til og vel documenteruð.

Þar kemur greinilega í ljós að Egill Helgason, sá ágæti maður hefur jú bloggað og að bloggið sem orð kom langtum fyrr í ljós. Því má einnnig álykta að Egill er vissulega rauðhærður, með krullur og hefur bloggað.

Orðið weblog sem blogger orðið kemur úr er síðan 1997, blog kom svo 1999. Blogger.com fer í loftið í ágúst 1999 og svo mætti lengi telja.

Að blogga er bara að skrifa hugrenningar sínar og skoðanir á netið. Linka á aðra sem gera hið sama og hafa möguleikann á að lesendur bloggsins geti sett inn athugasemd. Þetta allt hefur rauðhærði krullubossinn haft á sinni síðu sem hann jú bloggar ekki.

Einmitt.

Comments No Comments »

Sumir eru afskaplega fljótir að gleyma, eiginlega of fljótir að gleyma.

Samfylkingin óskar eftir upplýsingum um fjárhagslega samskipti borgarinnar og Byrgisins…….

Hefðu þeir ekki getað spurt sjálfa sig að þessu? Það hafa verið þeir ásamt sínum félögum í R-listanum sáluga sem sömdu og gerðu og græjuðu varðandi þetta.

Þetta lið er svo hresst.

Comments 3 Comments »

Breiðholtið allt og í raun öll þjóðin biður og vonar að meiðslin séu ekki eins alvarleg og ýjað er að í þessari frétt.

Við þurfum á Einari að halda til að ná sómasamlegum árangri á HM. Þetta átti að vera keppnin hans Einars.

Comments No Comments »

Steindór Gunnar Steindórsson fær sérstaka viðurkenningu fyrir klæðnað sinn á gamlárskvöld. Drengurinn hafði klippt áklæðið af stól í Þjóðleikhúsinu og sniðið þetta fína vesti úr áklæðinu, geri aðrir betur.

Við sjáum mynd:

Comments 3 Comments »

Það er alltaf gaman að gera lista, ég er listamaður svo ég noti nafn Bíó yfir þetta.

Listinn yfir bestu lögin 2006 er ekkert svo flókinn. Bæði hjálpar last.fm og iTunes manni við að greina þetta og svo er þetta hálf einfalt bara, en rosalega gaman. Óvísindalegt með öllu.

Lög ársins 2006 eru þessi í réttri röð.

15. Justice Vs Simian – We Are Your Friends

- Frábært lag sem fær mann til að dilla sér. Myndbandið vann verðlaun á MTV í haust. Gott lag og geðveikt myndband.

14. Modern Skirts – Seventeen Dirty Magazines.

- Bíó benti mér á þetta lag, skemmtilegt popplag en ekki allra. One hit wonder.

13. Peter, Björn and John – Young Folks

- Þetta er alvöru hittari hjá sænskum indie poppurum. Spila á Nasa í lok janúar. Það er töff að blístra.

12. Daniel Johnston – I Had Lost My Mind

 - Ekki gefið út á þessu ári en myndin um tónlistarmanninn Daniel Johnston kom út á þessu ári. Þetta er frábær tónlistarmaður sem er geðsjúkur sem hefur gert það að verkum að hann hefur aldrei náð almennri hylli. Endilega kynnið ykkur kappann.

11. Islands – Swans (Life after death)

- Uppáhalds sveitin mín á Airwaves og áttu erlendu plötu ársins í mínum huga. Snillingar allir með tölu.

10. The Killers – Bones

- Ágætis follow up hjá The Killers. Bones er lagið sem mér finnst best, fannst það leiðinlegt fyrst en það óx mjög í áliti. Virkilega flott blásturshljóðfæri í þessu lagi.

09. Mates of State – For the actor

- Ein af plötum ársins án efa hjá hjónakornunum í Mates of State. For the actor er brilliant lag. Voru æðisleg á Airwaves.

08. Lo-Fi-Fnk – Boylife

 - Komu á Airwaves í fyrra og voru rosalega svalir. Flaming gay og sænskir. Ekki myndband við rétt lag en gefur tóninn.

07. Camera Obscura – Lloyd, I´m ready to be heartbroken

 - Frábær plata með frábærri hljómsveit. Skosk og vinir Belle & Sebastian. Myndbandið er æði og lagið enn meira æði.

06. Arctic Monkeys – When The Sun Goes Down

 - Frábært lag af miðlungs plötu. Ungir strákar sem vonandi standast pressuna og gera meira gott. Video af flutningi þeirra í Jolls Holland. Þegar þetta er tekið upp hafa þeir ekki meikað það ennþá.

05. Belle & Sebastian – White Collar Boy

 - Gott Belle lag af einni af betri plötum ársins. Frábært live band sem ég hef séð fimm sinnum og bara eitt besta band í heimi. Bjóðum uppá eitt video live í myndveri BBC Scotland og svo myndbandið sjálft.

04. Toggi – Sexy Beast

- Toggi gaf út plötuna Puppy í september á þessu ári. Frábær plata sem erfitt er að trúa að sé gerð af strák úr Efra-Breiðholti. Hljómar eins og besta britpop. Sexy Beast fer á listann enda er lagið um mig og ég syng í því. Ekki flókið. Mp3 og læti.

03. Islands – Rough Gem

- Eiga lag í 11.sæti líka enda platan frábær. Myndbandið við þetta lag er æði og Sameinuðu þjóðirnar ættu að sæma sveitina orðu fyrir að vera með allt litróf manna í sveitinni.

02. Guillemots – Trains to Brazil

- Frábært lag sem var nálægt því að enda í fyrsta sæti.

Get hlustað á þetta lag endalaust. En það er bara næstum því enda annað lag í 1.sæti.

01. Band of Horses – Funeral

- Lag ársins er án alls vafa Funeral með Band of Horses. Lagið er í 1.sæti á fleiri stöðum en hjá mér enda ótrúlega gott lag. Einn , tveir og töff.

Comments 1 Comment »

Gamlársdagur í heild sinni var frábær. Rútínan var tekin að hluta og nýjum einingum bætt við. Svona eins og við viljum hafa það bara.

Uppúr hádegi var brunað í höfuðstöðvar Landsbjargar að hitta foreldra mína og vinir þeirra sem hittast alltaf á gamlársdag og keyptir flugeldar. Fólk sem kaupir ekki flugelda hjá hjálparsveitunum verður bara að sjá um sig sjálft þegar það skellur á óveður eða flóð eða eitthvað álíka. Örn Árnason og KR-ingar verða bara að koma og redda ykkur eða eitthvað, þið eigið ekkert inni hjá Landsbjörg.

Um kl 14 mætti maður prúðbúinn til sjávarútvegráðherra og fjölskyldu hans í árlegt gamlársboð þar sem veitingarnar flæddu meðfram veggjum ásamt mis kræsilegu dóti á veisluborðinu. Vestfirsk matarveisla hljómar hvorki vel á blaði né í sjón. Súri langreyðurinn var þó smakkaður svona til að prufa eitthvað nýtt . Selahreifinn og það allt var prufað í fyrra, maður þurfti ekkert að rifja upp bragðið af því. Langreyðurinn var allt í lagi, fínn eftir að óbragðinu var skolað með íslensku brennivíni.

Kvöldmatur á Jóh setrinu var hinn besti, maður kannski var orðin aðeins dannaður eftir boðið á undan en það eykur bara almennan hressleika. Í boði var krónhjörtur sem bragðaðist virkilega vel og gott meðlæti.

Guðjón og Brynja héldu svo áramótapartý, það var fínt. Maður ætlast bara til að vera með sínu fólki og það stóðst og flestir létu sjá sig. Á næsta ári er ég til í að prufa eitthvað nýtt, eitthvað öðruvísi. Það vantar í partýin okkar fleira nýtt fólk, sem maður getur ruglað í.

Comments 1 Comment »

Fyrsta afmælisbarn ársins 2007 er alltaf sama afmælisbarnið, ótrúlegt hvernig árin endurtaka sig.

Heimasæta, hamsturinn og óðalsbóndinn Svanhildur á afmæli í þetta skiptið. Hún á alltaf afmæli 1.janúar þannig að hún fær ekki alltaf afmæliskveðjur fyrr en nokkrum dögum seinna sökum ástands fólks á nýársdag. Svanhildur ber ein ábyrgð á því að hvítvín er ekki selt í kjörbúðum heldur bara í ÁTVR.

Svanhildur fær bara svona staðlaða kveðju því hún fékk sms í gær og svo fær hún gjöf þegar hún heldur uppá afmælið.

 

Comments No Comments »

Afmælisbarn dagsins er Jólabarnið. Guðjón Jónsson.

Hverfaráð Bakkanna ályktaði nýlega að eitt það besta sem hefði komið fyrir Bakkahverfið væri að Guðjón hefði flutt úr Núpabakkanum því þá hætti brjálaða jólaserían að birtast í glugganum þar.

Guðjón er ekki bara góður vinur heldur líka góður í öllu tengdu RCA snúrum, Avid og Full Cut Pro. Guðjón er einn af þeim sem er svo heppin að vinna við það sem hann elskar að gera.

Til hammó með ammó Gussinn minn.

Sendið honum kveðju, það er skylda.

Comments No Comments »

Það var virkilega erfitt að gera árslista fyrir árið 2006. Eins og það var nú auðvelt fyrir 2005. Það segir manni bara að árið 2006 var talsvert lakara tónlistarlega séð miðað við árið á undan.

En listinn , hann er svona.

Innlent

Erlent

Comments 1 Comment »

Ég veit ekki með ykkur en ég tárast næstum í hvert skipti sem að ég sé þetta. Uppáhalds íþróttamaðurinn minn að spila kveðjuleikinn sinn.

Ég man enn þegar að tilkynnt var í 23 fréttum RÚV að Magic Johnson væri hættur að leika körfubolta vegna HIV veirunnar og ég hágrét. Fannst einstaklega sárt og ósanngjarnt að „minn” maður væri að hætta.

 

Comments 3 Comments »

Þessi jólin voru 100% eftir bókinni og þannig viljum við hafa það, ekkert vesen og allt í góðu lagi.

Fyrir utan harmleikinn með Stiga sleðann er Óli bróðir minn maður hátíðarinnar.

Í gær í Trivial svaraði hann spurningunni „Nefnið einn hafnarbæ á Austurlandi” með svarinu Egilsstaðir.

Titill hans sem Gettu Betur maður fjölskyldunnar beið stór skaða en þó má það fylgja sögunni að hann vann spilið.

Comments 8 Comments »

Jólin eru ekki bara glens og gleði. Í gær þegar ég horfði á Guðdætur mínar tvær Heklu Dís og Vöku opna pakkana í allri sæluvímunni og látunum sem því fylgir fyrir þriggja ára og eins og hálfs ára börn var ekki bros á mér alveg allan tímann.

Þegar pakkaopnun var svona að mestu lokið breyttist gleðin í þvílíka sorg og ekkert huggaði mig fyrr en ég sofnaði með þumalputtann í munninum eftir ca. tvo lítra af heitu súkkulaði. Það róaði mig ekkert svo sárt var þetta.

Mamma mín og pabbi sem alltaf hafa gert sitt besta til að gleðja strákana sína stungu mig í bakið og stöppuðu svo á mér liggjandi í jörðinni.

Ég átti ekki von á þessu og var ekki undir þetta búin. Í raun var ég búin að gleyma þessum vonbrigðum æskunnar og ekki tilbúin að sætta mig við að þetta hefði verið eitthvað sem að gerðist.

Foreldrar mínir, þessir nútíma Júdasara gáfu barnabarni sínu Stiga sleða, munaðarvöru sem við strákarnir fengum aldrei. Vilja þau ekki bara gefa barnabörnum sínum Xbox360 og Nintendo Wii í leiðinni fyrst að þau eru byrjuð að sýna sig og sanna í ömmu og afa hlutverkinu.

Þessi jól eru búin! og þau verða ekki haldin aftur.

Comments No Comments »

Ég óska lesendum gummijoh.net gleðilegra jóla og þakka samfylgdina á árinu. Sex ár af bloggi og nóg eftir.

Gleðileg Jól


Jólakortið 2005

Comments 5 Comments »

Þeir sem ekki mættu á X-mas 2006 fara í jólaköttinn. Svo einfalt er það. Örvæntið samt ekki, það er hægt að bjarga ykkur.

Á internetinu er hægt að finna allan andskotann og það sem fer manna á milli í gegnum spjallforrit er ekki neitt varðandi Guðmund í Byrginu eða einhvern pedófíl sem talar við börn heldur snýst allt þessa dagana um Drengjakór Breiðholts.

Það er video sem fer manna á milli enda engin furða, það er stutt en það kemur fólki í jólaskap og róar taugarnar.

Sem hluta af samfélagsþjónustu síðunnar verður þetta myndband nú birt fyrir alla að sjá.

 

Comments 4 Comments »

Það var mikið húllumhæ í Breiðholti í gærkvöldi en þá var jólasmökkun í fullum gangi. Prufaðara voru allar helstu sortirnar sem mamma joh skellti í form þetta árið, þær skoðaðar og á þeim bragðað og svo gefin einkunn. Tekið var tillit til áferðar, útlits og bragðs. Bragðlaukarnir og tungubroddurinn voru núllstilltir með mjólk eða hvítöli til að hver kaka myndi fá sanngjarna meðferð við byrjun smökkunar.

Dómnefndin hefur lokið störfum og niðurstaðan er sem hér segir.

1) Sýrópssnittur

- Mikill hnetukeimur

- Gróf áferð

- Ekki allra.

Þessi kaka féll ekki vel að bragðlaukum dómnefndar. Einn meðlimur sagði að kakan væri kannski betri ef það hefði ekki verið byrjað á henni.

2) Lakkrísbitakökur

- Klassísk kaka

- Sannkölluð veisla í munni

- Lakkrísinn ekki brenndur sem engum finnst gott. Of margar húsmæður sem ná að brenna lakkrísinn sem gerir kökuna vonda.

- Hentar einstaklega vel með mjólk.

Lakkrísbitakakan er fyrir löngu búin að stimpla sig inn í hug og hjörtu landsmanna og það sést vel á orðum dómnefndar. Það sem öllu skiptir við bakstur kökunnar er að lakkrísinn sé ekki brenndur.

3) Súkkulaðiþrenns (Þrjár tegundir af súkkulaði í kökunni. Hvítt, dökkt og rjómasúkkulaði)

- Einstaklega mjúkar, átti von á stökkum kökum en þessar eru dúnmjúkar

- Mikið mikið súkkulaðibragð

- Börnin munu vera eins og Energizerkanínan eftir þessa

Þessi kaka vakti mikla lukku. Einn meðlimur dómnefndar fékk sér þrjár svo hrifinn var hann. Einn meðlimur vildi bóka að kakan myndi henta einstaklega vel til að koma stelpum til, súkkulaðið hefði þau áhrif.

4) Salthnetutoppar

- Mjög gróf áferð

- Auðvelt að borða margar fljótt án þess að ætla sér það

- Gæti verið gaman á næsta ári að prufa að setja súkkulaði líka í þær

Eins og með súkkulaðiþrennuna fékk einn meðlimur dómnefndar sér annan umgang af kökunni, reyndar var það sami dómari og fékk sér af súkkulaðiþrennunni.

5) Spesíur

- Eggjalausar sem hentar vel fyrir þá sem hafa ofnæmi fyrir eggjum

- Vanillukeimur ( Mamma Jóh tekur fram að engin vanilla er í kökunum)

- Yfir allar klassískar kökur hafnar. Engin jól án Spesía

Kaka í svipuðum flokki og lakkrísbitakökur. Ekki hægt að klúðra spesíum, þær eru alltaf góðar.

6) Súkkulaðikökur með Royal búðing

- Hér erum við að tala saman

- Þetta er allur pakkinn

- Hinn fullkomna smákaka

- Hittir beint í mark

Meðlimir dómefndar hoppuðu hæð sína af gleði eftir að hafa smakkað þessa köku. Kemur ný inn á jólakökulistann og er án efa nýliði ársins og bjartasta vonin.

7) Marengs (einhverjir skrifa þetta marens, það er bara vitlaust)

- Klassísk kaka, sannkölluð bomba

- Fara varlega í sakirnar með þessa

- Afskaplega sæt, eins og ég

Það vita allir að marengs kökur eru klassískar. Það sem skiptir mestu máli við bakstur á marengs er að hann sé ekki of lengi inní ofni því annars bráðnar kakan ekki í munni.

8) Mömmutoppar með sykri og möndlum

- Mmmmmmm

- Kókósmjöl, hvað get ég sagt

- Væri gott að prufa að setja súkkulaði í þessa

- Allur þessi kókos gerir hrikalega mikið fyrir kökuna

- Eina sortin sem ég myndi baka

Dómnefnd var sammála um að hér væri frábær kaka á ferðinni en þó er rými til að bæta sig. Dómnefnd kallar á að næst verði sett súkkulaði í kökuna.

9) Sörur

- Gerðar frá grunni, það sést langar leiðir. Ekkert hálfkák hér. (innskot, margar húsmæður spara tíma með því að kaupa tilbúnar kökur sem á bara eftir að setja krem og súkkulaði á, það er ekki gert á Jóh setrinu)

- Æðislegar kökur

Dómnefnd lagðist á meltuna og ræddi kökurnar í bak og fyrir. Einhverjir fengu sér meira smakk til að rifja upp hvernig kökurnar væru og svo var farið í einkunnagjöf.

Dómnefnd var sammála í meginatriðum þó að ein og ein kaka hefði skipt um sæti á milli dómara. Niðurstaða dómnefndar á jólakökubakstri Mömmu Jóh 2006 er þessi:

Comments 4 Comments »