Author Archive

Drengjakór Breiðholts mun stíga á stokk á árlegum jólatónleikum X-sins sem fara fram þetta árið miðvikudaginn 20.desember á Nasa. Miðaverð er krónur 977. Tónleikarnir eru til styrktar BUGL, einstaklega gott málefni.

Þeir sem hita upp fyrir Drengjakór Breiðholts eru t.d. Sprengjuhöllin, Lay Low, DR Spock, Brain Police, Reykjavik!, Skakkamanage og Dikta svo einhverju séu nefndir. Svo verður einhver Toggi þarna.

Comments 3 Comments »

Styttist í jólin og ég ekki búin að kaupa nema eina jólagjöf. Það mál allt verður klárað á morgun svei mér þá.

Jólatóndæmi dagsins finnst mér stórskemmtilegt. Það er ekkert æðislega vel sungið né æðislega vel spilað en heildarútgáfan er bara svo skemmtileg að maður getur ekki annað en farið í jólaskap við að hlusta á þetta. Í laginu eru jólabjöllur og hljómsveitin Maus. Allt þetta saman getur ekki annað en verið ávísun á gott lag. Maus var og er frábær hljómsveit, nýja dótið sem meðlimir sveitarinnar hafa verið að gera á ekki uppá pallborðið hjá mér en Maus er ein besta sveit íslandssögunnar í mínum huga. Mikið af góðu efni til eftir þá drengi.

Maus – Ég hlakka svo til

Comments 2 Comments »

Alveg er það ótrúlegt hvað einn rauður sokkur getur gert mikið í stórri þvottavél.

Ég sem hef aldrei klæðst þeim forláta klæðnaði sem rauðir sokkar eru. Mig grunar að móðir mín hafi plantað þessum sokk þarna til að koma mér í klandur.

Var ekki bleikt annars að koma sterkt aftur inn?

Comments 1 Comment »

Uppáhalds hljómsveit allra landsmanna er komin á internetið. Hlusta má á tóndæmi með sveitinni og sjá myndir af fögrum meðlimum sveitinnar.

Þess má til gamans geta að sveitin mun troða uppá X-mas 2006 tónleikunum á Nösu á miðvikudaginn.

Comments No Comments »

Tóndæmi dagsins er jólalag enda tíminn sá akkúrat í gangi. Í gærkvöldi var kveikt á þriðja aðventukertinu á L82 og á meðan það logaði með hinum tveimur sátum við í hring og höfðum hljóð svona til að leyfa augnablikinu að njóta sín.

The Polyphonic Spree er mögnuð skrýtin sveit sem oft hefur verið skrifað um á þessa síðu enda sveitin í miklu uppáhaldi hjá síðuhaldara. Sveitin hefur mest talið 27 manns en 17-21 manns eru svona eðlilegur fjöldi. St. Vincent sem hitaði upp fyrir Sufjan Stevens í Fríkirkjunni er ein af þessum 21 sem eru í kjarnahópnum. Það er fróðleiksmoli dagsins. Choral Symphonic Rock er skilgreiningin sem Tim DeLaughter, forsprakki setur á sveitina. Svo sem ágætis skilgreining.

Jólalag dagsins er upprunalega með John Lennon, lagið heitir Happy Xmas (War is Over). Lagið er síðan 1971, tekið upp af Phil Spector. Lagið hefur í sér skýr mótmæli gegn stríðinu í Víetnam en sá boðskapur er löngu gleymdur og lagið er fyrir löngu búið að stimpla sig sem venjulegt jólalag. Reyndar eru alltaf stríð í gangi einhversstaðar þannig að þetta á alltaf við.

Útgáfan með Polyphonic Spree er flott, virkilega flott en kannski einum of lík upprunalega laginu.

The Polyphonic Spree – Happy Xmas (War is Over)

Comments No Comments »

Eftir helgi mun ég setjast niður með Bolla Thoroddsen og Vilhjálmi Vilhjálmssyni borgarstjóra og ræða mál Laugavegarins. Ég ásamt borginni erum búnir að taka góðan skurk í Breiðholti en núna er komið að Laugaveginum mínum.

Til dæmis vil ég láta banna að druslur keyri niður laugaveginn, bílar með bilaða og lélegar viftureimar eiga ekkert erindi niður Laugaveginn. Þeir verða sektaðir ef þeir gera það.

Svo er annað mál sem er sínu verra en það er allt þetta fólk út úthverfunum sem kemur hingað í jólaösinni og tekur öll bílastæðin mín. Ég á ekki að þurfa að leggja meira en fimm mínutna gang frá mínu eigin heimili, ég þurfti þess ekki í Breiðholti og ætla ekki að gera það hér.

Þetta mál fer alla leið með hjálp Jóh klansins og meirihlutans í Reykjavík sem borðar úr hendi Jóh klansins.

Comments 7 Comments »

Afmælin eru að detta inní röðum. Í gær var það Ívar og í dag er það Binni.

Binni er snillingur, eins mikill snillingur eins og menn frá Siglufirði geta orðið. Að heimsækja ættaróðal BInna á Sigló er eitthvað það besta sem ég veit um. Spurning um að slá því föstu að næsta sumar verði Fossvegurinn heimsóttur.

Ég sakna Binna, hann er alltaf svo upptekinn. Er alltaf að læra, þjálfa eða að vinna. Það eru svona hans afsakanir. Sannleikurinn er auðvitað bara sá að hann þorir ekki að hitta mig því ég niðurlægi hann alltaf í tölvuleikjum.

It´s on Binni, it´s on!

Til hamingju með afmælið vinur.

 

Comments No Comments »

Ekki seinna vænna að setja inn jólalög fyrst að þau þessi jól fara að koma. Í þrjú ár hef ég sett inn sama jólalagið til að starta jólatóndæmunum og því ekki að gera það sama fjórða árið í röð. Hefðir eru góðar um jólin. Það verður engin Helgu Möller jólalög hér heldur skemmtileg jólalög með skemmtilegum böndum, svona eitthvað aðeins öðruvísi en normið.

Jóla-tóndæmi dagsins er því með Belle & Sebastian hvað annað og lagið er O Come, O Come, Emmanuel. Það er ótrúlega fallegt og langtum betra en t.d. útgáfa Sufjan Stevens. Fallegt lag og alveg afskaplega brothætt.

Belle & Sebastian – O Come, O Come, Emmanuel

Comments No Comments »

Afmælisbarn dagsins er Ívar Örn Helgason eða Íbbi frotté eins og innsti kjarninn kallar hann. Ívar er ekki bara klár á tölvur, að blanda drykki heldur er hann fæddur smiður og allt múlig maður plús að hann er harðgiftur góðri konu.

Ívar er úr Breiðholti sem gefur augaleið miðað við alla kostina sem ég taldi upp.

Í kvöld verður skálað með Ívari enda er hann að bjóða heim.

Comments No Comments »

Reign Over Me kemur í kvikmyndahús í henni ameríku þann 9.mars. Í myndinni leika Adam Sandler og Don Cheadle. Sandler er að leika í alvörugefnu hlutverki hér svipað og í Punch Drunk Love sem sýndi að hann er góður leikari, ekki bara einhver sprellikarl og Don Cheadle hefur fyrir löngu sannað sig. Er frábær í Hotel Rwanda og betri en allt í Boogie Nights.

Trailerinn fyrir myndina er fínn og lofar góður. Tveir góðir leikarar og söguþráðurinn virðist vera ágætur. Það sem fær mig þó til að klára mér í hausnum til blóðs er þó aðeins eitt.

Afhverju í fjandanum lítur Adam Sandler nákvæmlega eins út og Bob Dylan

Annars má til gamans geta að lagið sem er í trailernum heitir einmitt Reign on Me og er gamalt Who lag en er sungið af hobbitanum Eddie Vedder í trailnerum. Ó já.

Comments 5 Comments »

Sökum anna við jólaundirbúning á L82 hefur ekki verið mikið um blogg hér. Það er svona official afsökunin allaveganna.

Guðfinnur Ólafur Einarsson, sonur sjávarréttarráðherra hefur hafið bloggið aftur. Þar er á ferðinni þjónusta við þá serm eru í prófum og vona ég að hún verði til frambúðar. Bloggflóran er ekkert alveg 100% þegar að það vantar Guffann í blogghringinn.

Ritstjórn síðunnar óskar Guðfinni velfarnarðar í blogginu sem og í lífinu.


Nei hann er ekki samkynhneigður, hann er búin að afsanna þá kenningu.

Comments 1 Comment »

Það er alltaf áhugavert að sjá hvernig gamlir og nýjir tímar eiga það til að rekast á, stundum vel og stundum illa.

Eitt slíkt mál hefur verið í gangi í dag þegar ég tilkynnti móður minni að ég straujaði skyrtunar mínar eins og vindurinn en ég straujaði þær bara eftir mínu höfði. Ég þurfti að hafa mig allan að roðna ekki yfir þeim blótsyrðum sem úr símanum komu, fína frúin í pelsinum var ekki að tala dannað mál akkúrat á þeirri mínutu.

Til hvers að strauja alla flíkina þegar maður er eingöngu í henni undir peysu?

Til hvers að strauja alla flíkina þegar að jakki hylur næstum alla skyrtuna.

Ég strauja þess vegna eingöngu það sem er sýnilegt og ekki efnis ögn meira en það.

Þess má til gamans geta að ég er að ýkja þetta allt en það skiptir ekki máli. Góð saga á aldrei að líða fyrir sannleikann.

Comments 11 Comments »

Það sem ekki fylgir fréttinni hér er að útkallið var í Víkurbakkann til Dóra en Margrét móðir hans var búin að fá nóg af því að komast ekki í tölvuna til að leggja kapal.

Það er bara ákveðið oft hægt að skoða The Hun Dóri minn.

Annars finnst mér að lögreglan eigi ekkert að vera að svara svona köllum. Ekki var hringt í lögregluna þegar rifist var á Jóh setrinu um hver ætti að fara næst í Sinclair tölvuna, þar var ákveðin goggunarröð sem var þannig að Kiddi og Óli léku sér og ég fékk að mæta afgangi enda yngstur.

Comments 1 Comment »

Einn af þeim mínusum sem fylgja því að hafa flust búferlum úr 109 í 101 er að ég hitti Guðdætur mínar ekki eins oft. Einhverjum finnst þetta kannski ekki stór mínus en þeir vita þá væntanlega ekki að Lísa, Hekla og Vaka eru snillingar sem allar hafa í sér ríkt Jóh gen.

Í gær passaði ég Heklu og Vöku, gaf þeim að borða, skipti á kúkableyju sem Vaka ákvað að gefa mér svona fyrir svefninn og svæfði. Meðfærilegustu börn í heimi eru án efa þær tvær systur. Að fara í náttfötin, bursta tennur og svo fara upp í rúm var öllu svarað með tveimur já-um.

Þegar maður spyr “rétt upp hönd sem eru glaðir” lyfta þær svo höndunum upp eins og ekkert sé sjálfsagðara.

Næst er þá bara að hitta Lísu.

Comments 7 Comments »

Guðjón Arnar Kristinsson formaður Frjálslynda Flokksins er sérkennilegur fýr. Hann er ekkert sérstaklega vel að máli farin þrátt fyrir að vera formaður stjórnmálaflokks á Íslandi og ekkert skemmtilegur ræðumaður.

Það sem þó fer í mínar fínustu taugar er að hann andar svo hátt að bassakeilurnar grátbiðja um miskunn, ég heyri ekkert í sjónvarpinu nema andardrátt þegar að aðrir viðmælendur eða stjórnendur þáttanna eru að tala. Andardráttur sem að yfirgnæfir aðra. Hvort að þetta sé taktík eða ekki veit ég ekki en það er á hreinu að Guðjón má ekki skemma hátalarana mína með þessum bassa andardrættir.

Comments 3 Comments »

Matarræði ungra drengja er oft ekki uppá marga fiska. Tíminn er oft knappur og tímanum oft ekki eytt í eldamennsku. Flatbökukassar og gosflöskur upp um alla veggi.

Það er sko ekki raunin á L82. Þar var fírað upp í pönnunum í gærkvöldi, sósan pískuð til ólífis og kartöflugratín sett inní ofninn. Bara svona þessi venjulega mánudagsmáltíð.

Aðalrétturinn var þessi svokallaða dýrari týpan, frábær medium rare nautalund. Geri aðrir betur.

Comments 1 Comment »

Á laugardagskvöldið var farið í góðum hópi í Háskólabíó að sjá Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt rokkhljómsveit sem skipuð var rjóma íslenska tónlistarmanna (Jón Ólafs, Guðmundur Péturs, Friðrik Sturlu, Jóhann Hjörleifs, Pétur Jesú) flytja lög og texta John Lennons en heiðurstónleikarnir báru nafnið Give peace a chance.

Fyrir tónleikana var ég með hnút í maganum enda einstaklega erfitt að mínu mati að gera Bítlunum góð skil. Lögin eru föst í undirmeðvitundinni og maður hefur fast mótaðar skoðanir á öllu því sem tengist bandinu. Idol keppendur hafa t.d. fallið flatt á því að taka Bítla lag og stíga feilspor og þá finnst öllum viðkomandi bara lélegur, lög með Bítlunum þurfa alltaf að vera 100%. Jón Ólafsson var stjórnandi og þar sem hann er annálaður Bítlamaður átti ég nú samt von á því að þetta yrði rétt og vel gert, sem það svo sem betur fer var.

Án þess að ætla að lista upp hvert einasta lag sem tekið var að þá eru hér nokkrir plúsar og nokkrir mínusar.

Mínus:

Töffarinn Björn Jörundur tók Working Class Hero, lag sem er ekkert fyrir hvern sem er og Björn Jörundur klúðraði því hálf partinn. Viskíröddin hans ásamt leikrænum tilþrifum er ekki eitthvað sem ég vil heyra. Þó að leikrænu tilþrifin séu frá listaskólanum hans Paul McCartney áttu þau ekki heima þarna.

Plús:

Ég er ekki mikill Sigurjón Brink maður og var því hæst ánægður að sjá Pétur Örn Guðmundsson taka hans stað á sviðinu, ekkert illa meint gagnvart Brink er bara aðdáandi Péturs. Enda er Pétur frábær söngvari og stígur aldrei feilspor. Hann er afskaplega mikið á heimavelli þegar kemur að lögum Lennons og McCartney. Öll lögin sem að Pétur söng voru góð en þau voru Don´t let me down, Mind Games sem var æðislegt og svo Woman.

Mínus:

Næstum allir söngvararnir voru að styðjast við blöð. Textablöð til að muna Bítla texta. Hvur fjandinn er það? Að vel sjóaðir listamenn geti ekki lært tvö til þrjú lög og sungið af innlifun er skandall í mínum bókum og dauðasynd. Bítalög læra sjálfkrafa og textinn kemur með móðurmjólkinni. Eivör, Pétur, Haukur Heiðar úr Diktu og Jón Ólafs voru þau einu sem störðu ekki á blöð heldur sungu eins og á að syngja.

Plús:

Eivör Pálsdóttir er æðisleg söngkona. Þegar hún söng In my life, þetta ótrúlega fallega lag og svo Real Love af fyrstu Anthology plötunni fékk ég nettan gleðisting upp eftir öllu mjóbakinu og maður lifandi hvað hún er líka sæt.

Mínus:

Magnús Þór Sigmundsson, þessi goðsögn í lifanda lífi sem hefur samið fáránlega mörg frábær lög var úti á þekkju alla tónleikana. Starði á blöðin og gat ekkert gert án þeirra og var bara ekkert spes, eins ó áhugavert og hugsast gat.

Plús:

Sinfóníuhljómsveit Íslands er einn stór plús. Þegar að Jenni úr Brain Police söng I am the Walrus og sveitin öll fyrir aftan að spila sitt gat maður ekki annað en sagt vá. Sinfónían mætti gera meira af því að spila dægurlög og kvikmyndatónlist, það er það sem að pöpullinn fílar.

Plús:

Haukur Heiðar Hauksson, söngvari hljómsveitarinnar Diktu er einhver besti söngvari Íslands. Dikta var ein besta sveitin á Airwaves að mínu mati og það er næstum eingöngu útaf honum. Drengurinn er frábær. Þegar hann söng Happniess is a warm gun var mér öllum lokið, þetta verður ekki toppað.

 

Semsagt allt í allt frábærir tónleikar.

Comments 1 Comment »

Mánudagar eru alltaf jafn frábærir. Að ég mæti fyrir átta til vinnu gerist ekki oft og hvað þá að það gerist á mánudegi.

Þetta gæti stórlega misskilist.

Comments 2 Comments »

Afmælin eru að hrannast upp hérna. Svei mér þá, það þarf bara heilt stöðugildi í að manna lyklaborðið til að henda inn öllum þessum kveðjum.

Tökum því tvær í einu hér.

Á fimmtudaginn fagnaði Eiríkur Steinn Búason 26 ára afmæli sínu í Kaupmannahöfn þar sem hann býr ásamt Vigdísi og Sóldísi Maríu. Eiki Búa er snillingur, snillingur sem gaman er að drekka bjór með, rölta um Köben með og almennt bara vera með, hann er svokallaður gleðigjafi.

Til hamingju með daginn vinur, mússí mússí.


 

 Hitt afmælisbarn dagsins á afmæli í dag. 2.desember árið 1979 fæddist lítill listamaður í efri hluta Breiðholts. Sá drengur er ágætur í PES, næstum því jafn góður og ég en hann er miklu betri en ég á gítar og að syngja. Toggi er hitt afmælisbarnið. Toggi mun eiga bestu jólagjafirnar í ár sem er einmitt platan Puppy sem landsmenn dýrka og dá. Það sanna dæmin.
 
Til hamingju með daginn Toggi minn.

Comments 4 Comments »

Tóndæmi dagsins er ekki af verri endanum, frekar en vanalega.

Nýja Damien Rice platan rennur ágætlega í gegn. Það er erfitt að setja hana beint gegn O plötunni enda hún búin að síast í undirmeðvitundina í mörg ár ásamt því að þessir tveir ógleymanlegu tónleikar á Nösu gerðu hann enn ógleymanlegri.

Platan 9 hefur runnið nokkuð vel í gegn, eitt og annað sem maður fílar og eitt og annað sem maður fílar eitthvað minna. Eitt af þeim lögum sem ég var ekkert að fíla neitt sérstaklega fyrst er lagið Coconut Skins en mér fannst það bara afskaplega venjulegt eitthvað.

Um daginn náði ég í Later með Jools Holland þar sem Damien Rice var að spila og þar tók hann þetta lag og þá kviknaði eitthvað ljós. Þetta lag er auðvitað bara frábært.

Hvað finnst þér?

Damien Rice – Coconut Skins

Comments 3 Comments »

Næsta laugardag verður fjölskyldudagur í Rauðagerðinu en þá mun öll móðurfjölskyldan mín hittast til að gera laufabrauð, kleinur og ástarpunga. Ég ætla að skipta út mínum ástarpungum til að fá tvöfaldan skammt af kleinum fyrir mitt heimili (Arnar, Hlynur og ég).

Öll mín laufabrauð munu hafa útskorin stafinn G og kannski eitt Jóh hér og þar, jafnvel eitt sem stendur á 109.

Gestur, þú hefur þrjá virka daga til að klára það sem þú átt að klára. Veist hvað það er.

Comments 2 Comments »

Þetta mark er auðvitað ekki hægt, bara engan veginn hægt. Það er útaf svona mörkum sem B-liðið bíður mér svo sjaldan að koma. Ég nefnilega get púllað þetta múv líka.

Comments 2 Comments »

Hvað þýðir það þegar að lögreglan beitir viðurkenndum handtökuaðferðum og lögreglutökum? Finnst svolítið skrýtið að þetta sé sérstaklega tekið fram eins og að lögreglan hafi kannski beitt sér of hart og sé að fyrirbyggja eitthvað þess efnis.

Ætli sá sem handtekin var sé allur lemstraður, bólginn og marinn núna og íhugi að kæra lögregluna fyrir harðræði? Ég hef aldrei séð frétt sem notar þetta orðalag.

Þrefalt drop kick í ennið telst kannski til viðurkenndra handtökuaðferða? Hvað veit ég, ég er bara leikmaður.

Comments 3 Comments »

Sufjan Stevens er mér ofarlega í huga eftir tónleikana um daginn. Ég náði í útvarpsupptökur með honum þar sem hann er að kynna Illinoise plötuna á KCRW. Tóndæmi dagsins eru tvö lög úr þeirri lotu.

Sufjan Stevens – Casimir Pulaski Day

Sufjan Stevens – The Man Of Metropolis Steals Our Hearts

 

Comments 1 Comment »

Þrátt fyrir frábæra helgi á alla kanta er engin mánudagur í mér í dag. Vikan er þétt setin og ég hlakka bara til að takast á við hana. Fátt betra en einhver áskorun sem maður þarf að klóra sér í hausnum yfir.

Einn af mínusunum við miðbæinn er að það er lengra í Dóra en hann hefur bætt það upp með því að gista í miðbænum þegar hann er orðin ölvaður og leigubílstjórar neita að taka hann uppí. Það hefur bætt fyrir það að við hittumst ekki eins oft.

Á móti er annar plús og það eru fleiri samverustundir með Böb og Villa sem eru að færast nær kjarnanum í stað þess að vera hliðarlínu drengir. Það eitt og sér er auðvitað frábært þar sem þetta eru góðir drengir sem gaman er að drekka bjór með, horfa á fótbolta og xbox.

Einhverjir voru að spyrja mig hvernig London hefði verið. Ég get mest lítið sagt um það þar sem þessi dagsferð fór í fundi og lestarferðir. Ég sá ekki miðbæ London nema þegar ég gekk um ganga Picadilly stöðvarinnar en þá var ég neðanjarðar. Ég eyddi meiri tíma í flugvél heldur en í London sjálfri þannig að London var bara fín.

Comments No Comments »