Archive for the “Annað” Category

Ég á miða í Borgarleikhúsið fyrir tvo. Þarf að ákveða hverjum ég býð og svo hvað maður fer að sjá.

Rómeo og Júlía heillar mest í augnablikinu en ég hef heyrt góða hluti um það verk. Sól og Máni heilla mig ekki neitt og Píkusögur gætu komið til greina.

Ábendingar væru vel þegnar.

Comments 6 Comments »

Mér hefur einhvern veginn aldrei mikið til stúdentapólitíkur koma og fundist hún ómerkileg og eitthvað en núna breytist þetta í hausnum á mér þar sem Jarþrúður systir hans Jóa er í fyrsta sæti Vöku og ég vil auðvitað að henni gangi vel. Veit líka að þetta er dugnaðarforkur og á vel heima í svona.

Áfram Jarþrúður og áfram Vaka.

Comments 1 Comment »

Æ og ó mig auman!

Steingleymdi einu sem mér finnst hrikalegt að gleyma!

Sara Bjarney magnaða vinkona mín átti afmæli á laugardaginn og ég bara gleymdi stelpunni sem er ein í Danmörku að leika sér og læra.

Til hamingju með afmælið Sara mín og ég vona að ég hitti þig þegar ég mæti í Danaveldi í teboð til Þórhildar.


Strákar hún er á lausu! :)

Comments 6 Comments »

Ég veit að það er ljótt að segja svona. En ég segi það nú samt. Á forsíðu nýjastsa Mannlífs er mynd af hinum geðþekka Gísla Marteini og konunni hans og örugglega eitthvað voða fínt viðtal við þau í blaðinu.

Það sem vakti kátínu mína og mikin hlátur var þessi frábæra setning „bróðir minn misnotaði mig” og þau hjónin svona hress á forsíðunni. Fólk sem veit ekki til gæti allt eins haldið að þetta væri Gísli Marteinn og systir hans og að hún væri búinn að fyrirgefa honum. Svona er ljótt að segja en mér fannst þetta samt fyndið.

Comments 4 Comments »

Las svo asnalega og heimskulega grein í Mogganum í dag um að það væri 18 ára aldurstakmark inná Þjóðarbókhlöðuna. Þetta finnst mér eitt það heimskulegasta sem ég veit um. Þetta er landsbóksafn og því má hver sem er fara þarna inn þannig lagað.

Þó að einhverjir unglingar hafi verið með prakkarastrik er óþarfi að banna heilu árgöngunum að koma þarna inn. Ef t.d. ArnarAr væri með læti á hlöðunni ætti þá bara að banna öllum verkfræðinemum að læra? Það ætlar engin að segja mér það að það sé alltaf grafarþögn þarna inni og allir læðist meðfram veggjum til að styggja ekki stjórnendur Þjóðarbókhlöðunnar.

Þessir prakkarar eiga ekki að skemma fyrir öllum þeim samviskusömu krökkum sem vilja kannski nýta Þjóðarbókhlöðuna fyrir lestur og annað slíkt. Stjórnendur hlöðunnar ættu að skammast sín fyrir svona þröngsýni og asnaskap. Ég varð hálf fúll að lesa þetta því mér finnst þetta svo heimskulegt.

Var það komið fram að mér finnst þetta heimskulegt?

Comments 13 Comments »

Hann Guðfinnur ætlar að selja nýja símann sinn. Þetta er forláta Panasonic GD67 með litaskjá og allskonar fídusum sem maður notar aldrei.

Vikugamall sími og lítið notaður. Talið bara beint við Guðfinn.

Comments No Comments »

Ingibjörg Sólrún var bara að grínast. Hún er með ömurlegan húmor finnst mér. Þetta er ekki einu sinni fyndið. Næst segist hún ætla að taka í burtu holræsaskattinn og svo þegar allt kemur til alls er hún skellihlæjandi í holunni sinni að deyja úr hlátri yfir þessu magnaða gríni sínu því hún hafi bara verið að plata.

Í ráðhúsinu næsta fimmtudag verður standup. Framkoma Ingibjörg Sólrún og Úlfar Linnett.

Comments No Comments »

Comments 3 Comments »

Sá á broadway síðunni snilldar auglýsingu eftir Helga Má videokall en Brodaway var með einhverja keppni um bestu auglýsinguna.

Vona að Helgi Már vinni en hans er númer þrjú. Hún er snilld, einföld og minnnir mikið á framhaldsskólahúmorinn sem einkennir Láka þættina sem við gerðum.

Comments No Comments »

Djöfull sem ég er að fara að rusla mönnum í körfu í kvöld. Núna tel ég mig hafa efni á smá yfirlýsingum þar sem ég var svo yfirgnæfandi góður síðast. Ætla að troða yfir Þóri Aðalsteins og feisa Björgvin Inga nokkrum sinnum.

Þetta verður gaman.

Comments 1 Comment »

Þetta liggur nú í augum uppi. Auðskiljanlegt og skemmtilega sett upp hjá Birni. Það vita flestir að Ingibjörg Sólrún og R-listinn í heild sinni ætti að skammast sín.

Sést best á gleymda hverfinu Breiðholti. Get grátið mig í svefn yfir sinnuleysi og fáránleika þeim sem R-listinn trúir á.

Comments No Comments »

Guffi er búinn að tuða svo mikið um þetta að ég verð víst að pikka þetta inn því ekki vill ég að hann sé að tala of mikið við mig.

Um daginn var ég að keyra niður götu hér í bæ og með Pottþétt Gummi disk í tækinu og Guffi byrjaði að giska á öll lögin, það er hver væri flytjandi.

Hann gat einungis 10 lög af 18 sem er ömurlegur árangur hjá manni sem þykist vita eitt og annað. Hann var voða æstur í þessum „leik” sínum sem hann var einn í. Vissi t.d. ekki Sigur Rós þegar lag með þeim kom þó að það skyni í gegn.

Guffi er klaufi, Hans-Klaufi.

Comments Comments Off

Eftir nokkur ár þarf ég að fara að vakna fyrr ellefu á sunnudögum til að mæta í sunnudagsskólann. Ekki að ég sé að ræka trúnna eitthvað sérstaklega eða að skerpa á barnatrúnni en ég verð að fara þar sem það fylgir þeim skyldum að vera Guðfaðir.

Óli Jóh og Selma eru að fara að eignast barn og ég hafði hugsað mér að verða Guðfaðir. Það er laus staða að vera uppáhaldsfrændi en ég hitti litlu frændur mína þá Ketil, Tómas og Hinrik Ara svo sjaldan að ónefndur Jóh fær 100% aðgang að Guðföðurnum sínum.

Ónefndur Jóh verður strákur, það er ekki gengið út frá öðru þar sem Jóh fólk eru bara strákar. Ef það kemur stelpa að þá þarf að endurskipuleggja allt uppá nýtt og hugsa málið frá byrjun og í raun og veru að læra af mistökunum því stelpur hafa ekki verið í fjölskyldunni nema sem hækjur og hjálpargögn (lesist sem mágkonur og kærustur). Að sjálfsögðu er mamma ekki talin þar með enda er hún rauði þráðurinn sem heldur fjölskyldunni saman.

Þetta þýðir líka að maður verður að vera skemmtilegri við Selmu og hætta að stríða henni. Það þýðir væntanlega að Erla fái fleiri hovedet skot á sig.

Hamingjuóskir sendist á Óla og Selmu.

Comments 3 Comments »

Átti varla til orð þegar ég kom heim en þar beið mín 1.tbl úr 1.árgangi af blaði sem ber nafnið Lausnarorðið er Frelsi en þetta blað gefur Heimdallur út.

Loksins loksins loksins eitthvað sem lætur mér líða eins og hluti af þessu félagi. Venjuleg hefur það verið þannig að maður hefur lesið frelsi.is og svo keppast allir við að tala við mann þegar að það eru kosningar. Óvirki félagsmaðurinn ég er hrifin af svona og finnst þetta blað hið ágætasta.

Stjórn Heimdallar kemur mér mjög á óvart með þessu og vinnur sér í nokkra plúsa. Þó pirrar mig nafnleysið en blaðið en flestar greinar eru þannig að það er eins og Heimdallur allur eða nokkrir félagar úr Heimdalli hafa skrifað greinina. Það á alltaf finnst mér einhver að vera skrifaður fyrir einhverju sem gefið er út. Öðruvísi stendur engin bakvið það nema þá ábyrgarmaður miðilsins.

En hip hip húrra fyrir stjórn Heimdalls.

Comments 1 Comment »

Ég get ekkert að því gert en ég fer alltaf að brosa þegar ég heyri nafn vopnaeftirltismannins Hans Blix. Hljómar eins og nafn á vondum kalli í teiknimynd. Blix er bara rugl nafn.

Comments 1 Comment »

Bakgrunnarnir góðu eru að renna út eins og heitar lummur hvað sem það nú þýðir.

Það fer hver að verða síðastur.

Comments No Comments »

Birgir Ármannsson sækist eftir sjötta sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.

Hann er svo glaður og ánægður á myndum sem eru á síðunni hans með konunni sinni að ég þori varla að gera honum þann grikk að skella manninum á þing. Þá hefur hann minni tíma til að vera svona glaður og minni tíma til að vera með barninu sem þau eiga von á í vor.

Hvað gera bændur nú?

Comments 3 Comments »

My name is Ringo. I play the drums.

Comments 5 Comments »

Fékk áðan tölvupóst frá Sigurði Kára og þar stóð Guðmundur, þér er boðið í teiti bla bla bla.

Svona persónulegt venjulegt mail heillar mig langtum meira en eitthvað html dót eins og maður er búinn að vera að fá. Það flokkast bara sem spam og fer í sama flokk og „Hjálpaðu-Nígeríu-Manninum” póstinum, ódýr blekhylki pósturinn og stækkaðu typpið þitt pósturinn (eins og ég þurfi eitthvað á því að halda).

Svo finnst mér Sigurður Kári líka vera með langflottustu síðuna af þessum frambjóðendum. Plögg? Já hverjum er ekki sama um það.

X-Gummi Jóh og X-Siggi Kári

Comments 2 Comments »

Fór útí bæ áðan að setja upp ADSL í tölvu. Þetta var heildsala og fékk í staðinn sprey sem á að virka sem verkjastillandi.

Hef litla trú á svona dóti en prufað að sprauta smá á handarbakið. Það virkaði svo vel að ég dofnaði allur á handarbakinu. Þetta dót semsagt virkar eitthvað.

Ég þurfti því að gera aðra tilraun. Vantaði bara tilraundardýr sem ég fann í líki Guffa. Fékk hann til að sprauta létt á tærnar á sér en þær eru svo helvíti næmar fyrir svona þar sem að húðin er svo þunn. Áðan lætur hann svo útúr sér setninguna Now I know how evil feels like.

Þessi tilraun gekk upp því Guffi er núna vælandi yfir hvernig hann er í löppinni og ég veit að þetta spray dót virkar.

Comments No Comments »

gummijoh.net is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!