Þessi ráðgáta er enn óleyst, alveg síðan 1987. Þeir sem hafa upplýsingar um málið gætu þurft að bæta 55 fyrir framan símanúmerið úr auglýsingunni til að ná í gegn.
Ég gruna Óla frekar en mig eða Kidda um að hafa gleymt þessum bolta úti á Starfsvelli.

3 Comments »
Þegar maður skoðar lista yfir væntanlegar plötuútgáfur getur maður ekki annað en klórað sér í hausnum.
Var ég að vakna árið 1994 ?
25.mars – Counting Crows
25.mars – The Lemonheads
1.apríl – Moby
1.apríl – R.E.M.
8.apríl – The Breeders
15.aprí – Everclear
22.aprí – Blind Melon
29.aprí – Portishead
20.maí – Alanis Morissette
2 Comments »
Komin er nýr Breiðhyltingur sem ber eftirnafnið Popp!
Toggi og Stína eignuðust dreng í morgun, 12 merkur og 49 cm og fullkominn í alla staði samkvæmt nýbaka föðurnum sem eflaust á eingöngu eftir að semja barnaplötur það sem eftir er.
Þá er kynjastaða hópsins 3 strákar á móti 3 stelpum. Staðan gæti ekki verið meira spennandi.
Myndir af frumburðinum Popp koma síðar, mynd af föðurinum verða að duga þangað til.

14 Comments »
Ég hef afskaplega litla nennu til að tjá mig um nýja borgarstjórnarmeirihlutann eða borgarstjórann. Ég skil ekki alveg þessa leikfléttu hjá Sjálfstæðisflokknum og hverju hún á að ná fram. Kannski vita þau eitthvað meira en við hin eða þá að þau eru bara að hugsa um völd. Ég vona að það sé fyrri kosturinn.
Persónulega er ég þó sáttur með að Villi sé komin aftur til valda því ég var posterboy hjá honum í prófkjörinu sælla minninga. Ég spila ekki með lúserum og því gott að minn maður er komin aftur í valdasæti, það hentar mínu orðspori betur.
Innkomu Óskars Bergssonar fagna ég þó mikið, ég sakna Björns Inga ekkert sérstaklega. Óskar er góður og gegnheill Breiðhyltingur og ÍR-ingur. Bingi er ekki gegnheill þó hann sé Breiðhyltingur.
1 Comment »
Í gær var stærsta stundin á minni ævi sem launamaður. Ég fór á staðinn sem öllu skiptir, staðinn þar sem hinn heilagi kaleikur er geymdur. Staðurinn sem læknar fólk með einhver mein og lætur allt púlið og ruglið í vinnunni vera þess virði.
Um hvað er drengurinn að tala?
Jú, þetta liggur í augum uppi. Ég fór í vettvangsferð í Breiðholtssímstöð. Flottustu og bestu símstöð í öllum heiminum.

7 Comments »
Ég krefst þess að Reykjavíkurborg kalli Kópavogsbæ inná teppið strax eftir helgina þar sem þessi mál verða rædd. Það er ekki líðandi að nágrannasveitarfélag sé að menga náttúruperlu Reykjavíkur sem á engan sinn líkann í heiminum.
Breiðhyltingar munu sniðganga verslanir og þjónustu í Kópavogi þangað til að þetta mál hefur verið leyst og Kópavogsbær beðist afsökunar. Þetta fólk ætti að skammast sín, allt með tölu.
3 Comments »
Old skool dansarinn og handknattleiksmaðurinn Ragnar Óskarsson var kosinn besti leikstjórnandi frönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Raggi var einnig í þriðja sæti í kjörinu um besta handknattleikmann ársins.
Þess má til gamans geta að Raggi er einnig í landsliðshópnum sem kynntur var nú í gær ásamt Breiðhyltingnum Bjarna Fritz.
Annars er allt gott að frétta úr Breiðholti.
No Comments »
Eins og margir vita að þá eru alþingiskosningar framundan og mikið um þær rætt bæði í fjölmiðlum sem og í daglegu tali. Kosið er í sex kjördæmum um land allt og er það Reykjavíkurkjördæmi suður, sem ólíkt sjávarplássinu Reykjavík norður hefur Breiðholtið í sínu kjördæmi.
Breiðholtið er með 21. þúsund merka íbúa sem allir eiga það sameiginlegt að vera vitiborið myndarlegt fólk, með gott nef fyrir góðu bæjarstæði þegar kemur að því að stofna heimili.
Breiðholtið er það frábært hverfi að borgarstjórinn sjálfur, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson býr í hverfinu.
Á þessum árstíma er fallega hverfið í hlíðinni jafn stórkostlegt og París á vorin. Litskrúðugt mannlíf þar sem íbúarnir taka sér hvíld á iðju sinni til þess að bjóða þig velkominn/velkomna með brosi eða vinalegri kveðju.
Héðan koma miklir íþróttagarpar og fjármálaspekingar.
Upphaf alvöru kvikmyndahúsa hér á landi sem og á noðurlöndunum má rekja til Breiðholtsins enda fyrsta bíóið á norðurlöndunum með THX hljóðkerfi. Breiðholtið er líka með sitt eigið skíðasvæði (það er ekki nóg að vera bara með brekku) sem og fallegan dal þar sem hægt er að renna fyrir laxi eða leika sér í skóginum.
Sem færir mig að ástæðu þessarar færslu. Ég vildi bara láta ykkur vita af myndlistarsýningu leikskólabarna í Breiðholti sem verður þriðjudaginn næstakomandi í göngugötunni í Mjódd.
Endilega tjékkið á listamönnum (Breiðhyltingum) framtíðarinnar.
Hugmyndina að þessari færslu fékk ég hjá þessum bloggara.
18 Comments »
Held að það sé heilög skylda mín að nefna að Lárus Welding, nýráðinn forstjóri Glitnis er alinn upp í Suðurhólum 14. Sem er einmitt sama gata og Arnar 6 er alinn upp í.
Hann var allan sinn grunnskólaferil í Hólabrekkuskóla og fór svo í Verlzó. Hér eru alvöru staðreyndir um alvöru fólk. Öllum er sama um að hann hafi verið yfir Landsbankanum í London, það sem skiptir máli er að hann er Breiðhyltingur.
2 Comments »
Í kvöld er nýbúafundur í Breiðholtsskóla þar sem erindrekar og ráðamenn leiða saman hesta sína og fara yfir málin. Og afhverju er þessi fundur haldinn í Breiðholti?
Því er fljót svarað, því Breiðholtið er eina alþjóðahverfið í borginni með alþjóðastefnu sem önnur hverfi öfunda okkur af. Hér er hámenning, mekka menningar og lista þar sem hugvit og nýsköpun allstaðar af úr heiminum kemur saman, hverfinu til eflingar og framdráttar.
Hér anga stigagangarnir ekki bara af kjötsúpu og skreið eins og í öðrum skítahverfum heldur lykta þeir af framandi matargerð eins og t.d. Lasagne, London lambi, Gordon Bleu og dádýra Carpaccio.
Svo má líka bæta við að Breiðholtið er með pólska kjörbúð sem er með valinn varning frá menningarsvæðinu Póllandi. Pólland hefur einmitt alltaf verið kölluð perla austur Evrópu og því verslunin sannur hvalreki fyrir sælkera og matarunnendur í Breiðholti.
Tilvalið að keyra uppí fjallið helga á sunnudegi með alla fjölskylduna og fara í kjörbúðina góðu. Kaupa þar pólskt gotterí, já eða pólska geita-mjólk sem bragðast næstum því eins og RC-Cola.
7 Comments »