Archive for the 'Daglegt' Category

Spurt var í Trivial Pursuit. „Með hvaða liði lék körfuknattleiksmaðurinn Julius Erving ?”.

Það stóð ekki á svarinu hjá íslenska atvinnuflugmanninum.

„Tindastóll”

Af því tilefni sjáum við netta syrpu með stolti Sauðkræklinga. Eins og mig minni að það sé stytta af Doktornum við minni Skagafjarðar.

Eftir tveggja ára þróunarvinnu er tækið loksins komið á markað.

Þetta er það sem bjargar öllum mínum raksturs þörfum.

Ég er afskaplega ánægður með Breiðhylska landsliðið í handbolta á þessum Ólympíuleikum. Þótt að smá andleysi gegn Egyptum í nótt hafi sýnt sig skiptir það litlu, strákarnir eru komnir í 8 liða úrslitin og því ekkert eftir nema að klára dæmið og fara á verðlaunapall. Getan er til staðar, bara spurning um að hausinn sé á réttum stað og þá kemur þetta af sjálfu sér.

Fyrir alla Breiðhyltinga og nærsveitarmenn að þá má benda á þetta hér, lengi lifir í gömlum glæðum og allt það.

Guli herinn er kominn aftur.

Fulltrúi okkar Breiðhyltinga er ekki Tinni í Kongó heldur Dóri í Mósambík.

Það vill líka svo skemmtilega til að Dóri á afmæli í dag sem er kveikjan að þessu bloggi.

Dóri er að hjálpa íbúum Mósambík að klæða sig, gera bbq mat og hvernig best sé að snæða Royal búðing.

Af því tilefni verður birt mynd af Dóra að snæða þennan dýrindis mat sem Royal búðingur er.

Til hamingju með daginn elsku vinur.

Ég veit varla hvar ég á að byrja þetta blogg, þetta er með því steiktara sem ég hef upplifað.

Á miðvikudaginn þegar bongóblíðan var ákvað ég að hætta vinnu á hádegi og taka sólardag, það var ekki annað hægt.

Ég lagði bílnum mínum á Visaplaninu sem er fyrir neðan Visa/Landsbankann á Laugaveginum. Er að labba upp Barónstíginn í átt að L82 (merkt A á mynd) þegar ég heyri þvílíkann skell og brothljóð.

Ég sný mér við og sé vínrauðann Citroen (nr eitt á mynd) vera búin að bakka af öllu afli á Land Crusier jeppa (nr tvö) sem hentist á Volkswagen (nr þrjú) sem hentist svo á Toyota leigubíl (nr fjögur) sem var farinn þegar að myndin var tekin. Brotalínan sýnir hvaðan bíllinn kom.

En ballið er ekki búið ,

Ökumaður bílsins sem var gamall maður með hatt (án djóks) setur því næst í Drive og neglir bílnum aftur í stæðið sem hann var að koma úr (merkt x á mynd), rekst þar að öllu afli á hvíta Yarisinn (nr fimm) sem hendist á bílinn fyrir aftan sig (nr sex), þaðan fer ökumaðurinn á dökku Toyotuna (nr sjö) og þaðan á rauðu Toyoutuna (nr átta) sem hendist á rauða bílinn (nr níu). Hann hafði svo líka rekist í jepplinginn (nr tíu) sem var dældaður á brettinu að framan með brotið ljós.

Þarna stöðvast bíllinn en reykspólar á planinu í sirka 20 sekúndur þangað til að hann stöðvar. Ég veit ekki hvað kom fyrir ökumanninn, hvort að hann hafi fengið aðsvif, flog eða eitthvað álíka en 10 bílar eru tjónaðir.

Það fyndna við þetta allt er bíll merktur númer 11, það er minn bíll en hann hefði verið næsti bíll við þetta allt ef jepplingurinn hefði hreyfst eitthvað af viti. Ég trúi þessu varla enn.

Myndin er stækkanleg og ég þakka allt hrós er varðar teiknihæfileika mína. Jens teiknikennari úr Breiðholtsskóla væri ánægður að sjá að ég teikna jafn vel nú og þegar ég var 8 ára.

Vinnustöðvun leiðbeinenda í Vinnuskóla Reykjavíkur gjörsamlega lamaði þjóðfélagið í dag, og það á mánudegi.

Hvað á þetta eiginlega að þýða ?

Hljómsveitin Bermúda mun falla til jarðar og brenna upp í gufuhvolfinu. Ástæðan er eingöngu sú að ný hljómsveit er komin sem tryllir pöpulinn og er fullbókuð allar helgar út árið.

Hljómsveitin Broddar frá Reykjavík segir hæ !

Þetta er með því skemmtilegra sem ég hef séð lengi.

Dr. Horrible eru net-þættir eftir Josh Whedon, þann sama og gerði Firefly og Serenity.

Krepputal hvað ? Ég tók ekki þátt í neinu góðæri og ég ætla ekki að taka þátt í neinni kreppu.

Því ættu allir færir menn og konur að skella sér á hinn frábæra og fróma vef sem hér verður tengill á og eyða nokkrum krónum.

Þær fara ekki í neina vona menn með bumbur sem reykja vindla og hlæja að almúganum heldur í alvöru menn sem láta sig rétt mál skipta og eru vinir vina sinna.

Einn, tveir og kaupa, kaupa, kaupa.

Þetta er mesta afrek íþróttasögunnar sagði viðmælandi fréttastofu um svipað leiti og hann gekk til náða í hjólhýsinu sínu við Laugarvatn.

Hekla Dís, guðdóttir mín er 5 ára í dag. Af því tilefni er blásið til veislu enda tilefnið klárlega fyrir hendi.

Ég lít á það sem þroskamerki að mér sé boðið í fjölskylduboð fyrir eldra fólk en ekki í barnaafmælið sem er líka haldið, fyrir það sýnda traust er ég þakklátur.

Gummi,Hekla og Vaka.

Hlyni átti afmæli í gær. (Og þá Björk líka þar sem hann er tvíburi)

Afmælisbarnið reyndar svaf næstum af sér afmælið en það reddaðist þar sem hann skröltaðist á fætur þegar það fór að rökkva. Það er einkennilega tilfinning að vita að drengurinn okkar Jóa er orðin að manni. Hlyni minn er bara orðin stór og farin að spá í stelpum og hvernig heimurinn virkar.

Afmælisbarnið fékk í afmæligjöf forláta bindi og matreiðslubókina Eldaðu maður! sem kennir undirstöðuatriði eldamennsku og hvernig skal bera sig með svuntu. Gott fyrir mann sem haldin er fóbíu þegar kemur að eldhúsinu en kann þó að elda einn rosalega góðann rétt.

Það verður gaman að fá flunkunýja rétti úr smiðju Hlyni.

Læt fylgja mynd af afmælisbarninu með uppalendum sínum.

Á föstudögum er morgunkaffi á fimmtu hæðinni hér í vinnunni. Samkeppnin um besta kaffið verður alltaf harðari og harðari, menn eru að slá um sig með því að skella í Vilko og koma með vöfflujárn og ég veit ekki hvað og hvað. Með góðu kaffi má vinna af sér bjórskuld þannig að það getur því verið til mikils að vinna.

Það hafði engin trú á að yngsti starfsmaður hæðarinnar myndi gera eitthvað gott, í mesta lagi kaupa snúða sem sætabrauð og skera í bita handa fólkinu.

Ef þau bara vissu að íbúar L82 kalla ekki allt ömmu sína þegar kemur að eldhúsverkum. Við erum að reka heimili og kunnum því til verka.

Því var skellt í form og það frá grunni, ekkert Vilko eða Betty Crocker dót. Það var stífþeytt, brætt og brasað þangað til að niðurstaðan var ásættanleg.

Bláberjamúffur eru af hinu góða, og já Guffi. Ég er frábær.

 

Ég legg til að engu vatni verði hleypt á nýju vatnslögnina til Eyja fyrr en að Eyjamenn taki ábyrgð á sínu fólki og læsi Árna Johnsen inni í bjálkahúsinu sínu.

Svo hef ég aldrei skilið afhverju Eyjamenn eru svona montnir og grobbnir, þeir eru eins og kettir. Horfa á aðra sem ekki eru frá Eyjum og hafa ekki asnaleg gælunöfn eins og Árni Biddu og Gunni Límskúffa með einhverjum vanþóknunarsvip.

Hættum að dæla rafmagni og vatni í þetta fólk, það verður að koma uppá meginlandið til að fá að vera með í lífsgæðakapphlaupinu.

Þetta er ógeðslega fyndið. Næstum jafn fyndið og „Hvað á þetta eiginlega að þýða”-konan.

Þessi ungi maður gengur óhræddur út í lífið. Hann er í reyklausa liðinu.

Þetta kallast menning, hámenning.

Við búum í fjölmenningarsamfélagi. Myndin er stækkanleg með einum smelli.

Um daginn þurfti ég að fara inní herbergið hans Hlyni. Fataskápurinn var opinn og ég starði inn í hann og klóraði mér í  hausnum um hvað drengurinn er að skipuleggja inni í skápnum. Ég nota minn skáp til að geyma föt, það gerir Hlyni sko ekki.

Mér væri talsvert létt ef þetta væri bara heimabrugg inni í skápnum eða fikt við sígarettur en þetta lítur frekar út eins og drengurinn sé að skipuleggja heimsyfirráð.

Þegar þetta eina símtal kemur á nokkra mánuða fresti hverfa einhvern veginn öll vandamál heimsins á einu bretti og aðeins eitt kemur í huga manns, að ná í góssið.

Amma Dúna var að baka kleinur og tilkynningin um að ég mætti koma að sækja nokkra poka handa L82 var fljótt afgreidd.

Það er ekki til neitt betra en nýbökuð kleina og glas með mjólk. Sérstaklega ef hún er snædd í Rauðagerðinu hjá mínu fólki.

L82 fengu þrjá poka, með fimmtán kleinum hvor. Það er talið ofan í hvern poka svo að allir fái jafnt. Pokarnir eru búnir því að Kata hans Jóa hreinlega missti sig í kleinusmakki.

Ég fékk eina kleinu.