Ég nenni nú ekki að eyða miklu púðri í að tjá mig um handrukkara innslag Kompás í gærkvöldi. Mér svíður langmest og nær eingöngu að allir séu að tala um handrukkara málið en engin virðist vera að spá í innslaginu sem kom á eftir. Leiðinlegt ef það grefst svona undir.
Það eru nefnilega þvílík tækifæri í kræklingarækt á Íslandi.
Hið árlega Hattapartý B-liðsins var haldið hátíðlegt um helgina. Á sunnudeginum sló ég fyrra Íslandsmet í þynnku, ég verð lengi að jafna mig eftir þetta. Ég vil helst kenna bleika stelpudrykknum hans Guffa um þynnkuna sem við vorum að dunda okkur við að drekka sem skot.
Dagurinn byrjaði á Ólympíuleikum B-liðsins þar sem keppt var í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í langstökki, hástökki, 60m spretthlaupi, kúluvarpi og 60m grindarhlaupi.
Ísi átti þvílíka snilldartakta í næstum öllum greinum sem endaði með því að einn þjálfarinn bauð honum að koma á æfingar. Ég sjálfur hafði engu gleymt frá leikfimitímum í Breiðholtsskóla og gat því ekki rassgat. Er einna mest ánægður með góðan tíma í 60m grindarhlaupinu.
Í fréttum í kvöld var talað um umræður sem sköpuðust á Alþingi um svo kallaðar staðgöngumæður. Eðlileg umræða og þörf og allt það.
Það sem hæstvirtur heilbrigðisráðherra hafði um málið að segja í ræðustóli Alþingis vakti þó athygli mína og í kjölfarið heljarinnar pirring.
Hann sagði að málið yrði að skoða frá heilbrigðissjónarmiðum, lögfræðilegum, siðferðislegum og svo bætti hann við að hann teldi mikilvægt að kirkjan kæmi nálægt þessu sem og almenningur.
Hvurn andskotann hefur kirkjan um það að segja hvort að staðgöngumæður verði leyfðar hér á Íslandi. Eigum við ekki bara að fá álit Biskupsstofu á samningaviðræðum við ljósmæður og hvað eigi að gera með álver á Bakka fyrst að við erum byrjuð.
Sarah Palin, varaforsetaefni Repúblikaflokksins er ekki merkilegur pappír í mínum bókum.
Hún aðhyllist „creationisma“ sem þýðir að hún trúir ekki á þróunarkenningu vísindanna heldur þróunarkenningu Biblíunnar. Við erum sem sagt ekki komin af öpum heldur er allt líf á jörðinni skapað af einum manni. Einmitt það já.
Fyrir utan þetta rugl og bull og vitleysu að þá er hún á móti fóstureyðingum og trúir að það eigi að predika skírlífi í stað kynfræðslu í skólum.
Það hræðir mig að árið 2008 sé kona með svona hugsanir mögulega að fara að verða valdamesta kona í heimi. Það hræðir mig enn meira að það sé fólk þarna úti sem hampar henni og ætlar sér að kjósa hana og McCain. Sama fólk og gerði óða kúrekanum kleift að vera forseti Bandaríkjanna í átta ár.
Ég er afskaplega ánægður með Breiðhylska landsliðið í handbolta á þessum Ólympíuleikum. Þótt að smá andleysi gegn Egyptum í nótt hafi sýnt sig skiptir það litlu, strákarnir eru komnir í 8 liða úrslitin og því ekkert eftir nema að klára dæmið og fara á verðlaunapall. Getan er til staðar, bara spurning um að hausinn sé á réttum stað og þá kemur þetta af sjálfu sér.
Fyrir alla Breiðhyltinga og nærsveitarmenn að þá má benda á þetta hér, lengi lifir í gömlum glæðum og allt það.
Ég veit varla hvar ég á að byrja þetta blogg, þetta er með því steiktara sem ég hef upplifað.
Á miðvikudaginn þegar bongóblíðan var ákvað ég að hætta vinnu á hádegi og taka sólardag, það var ekki annað hægt.
Ég lagði bílnum mínum á Visaplaninu sem er fyrir neðan Visa/Landsbankann á Laugaveginum. Er að labba upp Barónstíginn í átt að L82 (merkt A á mynd) þegar ég heyri þvílíkann skell og brothljóð.
Ég sný mér við og sé vínrauðann Citroen (nr eitt á mynd) vera búin að bakka af öllu afli á Land Crusier jeppa (nr tvö) sem hentist á Volkswagen (nr þrjú) sem hentist svo á Toyota leigubíl (nr fjögur) sem var farinn þegar að myndin var tekin. Brotalínan sýnir hvaðan bíllinn kom.
En ballið er ekki búið ,
Ökumaður bílsins sem var gamall maður með hatt (án djóks) setur því næst í Drive og neglir bílnum aftur í stæðið sem hann var að koma úr (merkt x á mynd), rekst þar að öllu afli á hvíta Yarisinn (nr fimm) sem hendist á bílinn fyrir aftan sig (nr sex), þaðan fer ökumaðurinn á dökku Toyotuna (nr sjö) og þaðan á rauðu Toyoutuna (nr átta) sem hendist á rauða bílinn (nr níu). Hann hafði svo líka rekist í jepplinginn (nr tíu) sem var dældaður á brettinu að framan með brotið ljós.
Þarna stöðvast bíllinn en reykspólar á planinu í sirka 20 sekúndur þangað til að hann stöðvar. Ég veit ekki hvað kom fyrir ökumanninn, hvort að hann hafi fengið aðsvif, flog eða eitthvað álíka en 10 bílar eru tjónaðir.
Það fyndna við þetta allt er bíll merktur númer 11, það er minn bíll en hann hefði verið næsti bíll við þetta allt ef jepplingurinn hefði hreyfst eitthvað af viti. Ég trúi þessu varla enn.
Myndin er stækkanleg og ég þakka allt hrós er varðar teiknihæfileika mína. Jens teiknikennari úr Breiðholtsskóla væri ánægður að sjá að ég teikna jafn vel nú og þegar ég var 8 ára.
Hljómsveitin Bermúda mun falla til jarðar og brenna upp í gufuhvolfinu. Ástæðan er eingöngu sú að ný hljómsveit er komin sem tryllir pöpulinn og er fullbókuð allar helgar út árið.
Krepputal hvað ? Ég tók ekki þátt í neinu góðæri og ég ætla ekki að taka þátt í neinni kreppu.
Því ættu allir færir menn og konur að skella sér á hinn frábæra og fróma vef sem hér verður tengillá og eyða nokkrum krónum.
Þær fara ekki í neina vona menn með bumbur sem reykja vindla og hlæja að almúganum heldur í alvöru menn sem láta sig rétt mál skipta og eru vinir vina sinna.