Var að horfa á teaserinn fyrir Star Wars:Episode III sem var að koma út.
Guð minn góður hvað þetta lofar góðu. Hversu svalt er að sjá fæðingu flottasta vonda manns sögunnar, sjálfs Svarthöfða. Amidala mætt með Leiu hárgreiðslu og komin vísir af X-Wing og Yoda fær að berjast meira.
Mér er sama um nördaskapinn sem að skín úr þessari færslu, þetta er of svalt til að vera satt.
Þeir sem hafa áhuga á að sjá trailerinn þar sem hann er ekki komin út nema í eitthvað starwars.com subscriber og AOL only dót hafi samband.
3 Comments »
Þetta er með því furðulegra sem að ég hef heyrt lengi.
Jarvis Cocker, frontmaður Pulp og Íslandsvinur mun semja tónlistina fyrir næstu Harry Potter mynd og velja einhver lög til að skella í hana. Gæti verið flott en gæti líka verið vonlaust, sem verður að teljast aðeins líklegra.
No Comments »
Rosalega er Boogie Nights nú góð mynd. Horfði á hana áðan í fyrsta skipti í meira en ár og alveg er þessi mynd að gera sig. Svo rosalega mikið af hæfum leikurum og svo er þetta bara svo falleg mynd, vel tekin og með soundtrack sem að lyftir snilldinni sem þessi mynd er enn hærra upp.
Philip Seymor Hoffmann, Burt Reynolds, Luis Guzman, Julianne Moore, John C. Reilly og Don Cheadle öll með stjörnuleik sem bara á sér engin takmörk. Joy með Appollo 100 er svo magnað lag þó að það heyrist bara í ca. 30 sekúndur í myndinni en gott er það.
Allir að sjá þessa mynd aftur, já og ég tala nú ekki um að sjá hana í fyrsta skipti.
1 Comment »
Fór með tveimur stelpum í bíó áðan. Nenni í raun og veru ekkert að tala um Halle Berry myndina Gothika þar sem mér fannst hún ekkert spes.
Svona hryllingsmyndir finnast mér alltaf svo lítið spennandi, óttalegar formúlumyndir sem ganga aldrei upp, draugar eru ekkert til og því lítið fútt að hafa þá þarna og ég verð aldrei neitt hræddur sem gerir tilganginn óttalega asnalegann.
Stelpurnar tvær þær Toggi og Þorsteinn voru óttalega fyndnar samt, þær veinuðu og kveinuðu yfir hverju atriðinu á eftir öðru og Þorsteinn sat í fósturstellingunni með lokuð augun þegar hamagangurinn var sem mestur. Nokkuð ljóst að ég fer bara á grínmyndir með þessum tveimur stelpum næst.
3 Comments »
Hin heilaga þrenning loksins að koma á DVD. Allaveganna er orðið á götunni það og ég kvarta lítið yfir því. Loksins, loksins, loksins.
Vona að þetta sé satt.
2 Comments »
Ég og Bryndís buðum bræðrum hennar á Pirates of the Caribbean í gær. Þessi mynd kom mér bara virkilega á óvart og minnir einna helst á ævintýramyndir fyrri ára eins og Indiana Jones og Gonnies. Myndin er frekar venjulega formúlu mynd en þetta er allt framkvæmt svo vel að myndin fer þannig sjálfkrafa á hærri stall en hinar sumarmyndirnar.
Þetta er með betri myndum sem ég hef séð í sumar. Maður getur hlegið að henni og skemmt sér mjög vel yfir dellunni sem þetta er. Johnny Depp heldur henni þó uppi og er langtum betri en allir hinir sem í myndinni leika.
No Comments »
Bryndís plataði mig í gær til að fara á Charlies Angels 2. Þetta var nú einhver mesta þvæla sem ég hef séð en þó var eitt og annað sem gladdi augað.
Fyrst má nefna stelpurnar en þær eru í þessu til að sýna hvað þær eru sætar, svo má nefna brellurnar sem eru virkilega vel gerðar. Þessi mynd er svona eins og ferskt jöklasalat. Það brakar af ferskleika og glansar eftir að hafa verið þrifið undir vaski.
Ég hugsa að Villi Vill hafi sagt þetta best. Enginn veit fyrr en reynir á” eða nei meira þetta er eins og þátturinn Hjartsláttur með budget”.
Sammála Villa þar.
1 Comment »
Fór með fríðasta föruneytinu í bíó um helgina og var skundað á The Hulk. Ég er ekki frá því að þarna sé mætt besta ofurhetjumyndin af þeim öllum.
Myndin er ekki þessi venjulegi summer blockbuster heldur bara nokkuð alvarleg mynd um mann sem á við mikinn vanda að stríða sem bælir hann niður sem manneskju.
Það er ekkert svona From this day forward I will be known as the Hulk” eins og Bent sagði réttilega eftir myndina þegar við vorum að ganga úr salnum heldur bara mjög vel sagt frá erfiðleikum mannsins að takast á við eitthvað sem er að gerast innra með honum.
Myndin er viðbjóðslega vel klippt og virkilega flott að hafa allar klippingar og annað í svona myndasögustíl. Og Hulk sjálfur er virkilega vel gerður, hann passar 100% inní umhverfið og er miklu flottari en Gollum að mínu mati. Hulk hendir fólki til og frá, brýtur og bramlar hús og bíla, stekkur á þyrlur og gerir fullt sem sýnir hann snerta hluti í umhverfinu og þeir bregðast við því. Ryk þyrlast upp þegar hann stígur niður, sviti rennur niður andlit hans en Gollum gerir ekkert af þessu.
Í LOTR er mikið einblínt á Gollum sjálfan í einhverjum close-up skotum og eina skiptið sem hann almennilega snertir umhverfi sitt stígur hann rétt ofan í vatnspoll. Vel gert en Hulk toppar það allt.
Góð mynd. Ekki fara á þessa mynd með það í huga að horfa á Spiderman / X-men sumarfílingsmynd heldur bara almennilega mynd.
2 Comments »

Horfði í dag á snilldarmynd með Val. Átti von á að myndin Terminator 3 væri ekkert spes en hún var bara massa svöl og hin besta skemmtun. Arnie er bara mjög góður og nær að vera sniðugur og WOW faktorinn í myndinni er bara ansi mikill og ég og Valur vorum báðir hæst ánægðir með þessa mynd. Mjög flottar brellur og gellan sem leikur vélmennið er hress.
Góður hasar og ágætis söguþráður sem passar fínt inní Terminator dótið allt saman. Var búinn að gleyma að þetta eru bara ágætis svalar myndir.
3 Comments »
Kláraði loksins að horfa á aðra seríu af 24 í gær. Það voru búnir að staflast upp einhverjir fimm til sex þættir ásamt lokaþáttinum og því var ég ekki að nenna að klára þetta en er búinn að vera að saxa þetta á síðustu dögum.
Óttaleg snilld eru þessir þættir. Fyrsta sería var góð og datt ég almennilega inní hana en seinni serían er bara langtum betri ef eitthvað er. Eitt gott við þessa þætti er að ástin fyrir bandaríska fánanum sést ekki mikið sem er nýmæli í bandarískum þáttum sem involvera stríð og þannig hluti. Ég get ekki sagt annað en að Jack Bauer sem að Kiefer Sutherland leikur er virkilega góður karakter og hlakka ég virkilega til að sjá þriðju seríu. Lokaþátturinn var ROSALEGUR og lítið sem að ég gerði nema að bíta í rúmteppið mitt af spenningi. Guð hjálpi okkur öllum ef raunveruleikinn er eitthvað í líkingu við söguna í 24.
2 Comments »
Nýja Jim Carrey myndin er góð. Loksins að Jim Carrey leikur hlutverk sem maður vill sjá hann í, svona alvöru Jim Carrey hlutverk sem minnir á Ace Ventura, Dumb & Dumber og Liar Liar og þetta sprell hans allt saman. Finnst hann ekki alveg ganga í alvarlegu hlutverkun þó að hann sé virkilega búinn að sanna að hann geti leikið. Hann ætti samt bara að halda sig við það sem hann gerir best sem er einmitt jú að fíflast. Hló mikið af þessari mynd og þetta er svona mynd sem maður getur horft nokkrum sinnum á.
Horfði á myndina með nýju vinum mínum þeim Védísi og Sæma sem er alltaf jafn gaman að heimsækja. Hresst fólk, vantar samt fylleríi með þeim við fyrsta tækifæri. Örugglega nóg af þannig tækifærum í framtíðinni.
1 Comment »
Hef ekkert skrifað um kvikmyndir nema þegar ég sá Matrix um daginn. Hef eitthvað séð síðustu vikur og mætti telja eitthvað af því upp til gagns og gamans.
Identity
Fín mynd með John Cusack. Þó að vitleysan í þessari spennyhryllingmynd fari soldið í mig koma höfundar myndarinnar þó með ágætis afsökun fyrir því afhverju þetta stafar allt saman sem er þó skárri en oft áður. Fín mynd sem ætti að taka á video í stað þess að borga sig inná.
Old School
Rosalega finnst mér Will Farrell vera fyndin maður. Ekki bara að hann sé hetja í Superstar heldur er hann langtum besti leikarinn í þessari mynd. Myndin sjálf er bara týpiskt bandarísk sumarmynd en Will Farrell heldur þessari uppi með snilldaratriðum. Sérstaklega gott er streaking hlaupið í gegnum bæinn og þegar hann byrjar að bulla eftir að hafa skotið sig í hálsinn með deyfibyssu. Vel hægt að hlæja að þessari en þó helst á video.
The Faculty
Hef nú oft séð hana þessa en Bryndís vildi sjá hana um daginn. Myndin er ansi scary og bara vel gerð. Gerð af Robert Rodrigues sem gerði El Mariachi og svo seinna Hollywood endugerðina Desperado. Eljiah Wood leikur í myndinni og er kannski sá besti.
Better Luck Tomorrow
MTV mynd og þannig myndir eru bara ágætar. Óþekktir leikarar og nóg af tónlist hent í myndina eins og svo oft áður í MTV myndum. Sagan er þó alveg í lagi og maður gat alveg legið yfir þessu eins og hverju öðru. Samt ekkert svo merkileg mynd þannig lagað.
No Comments »
Fór í gær með fríðasta föruneytinu á Matrix Reloaded og vil ekki skemmileggja fyrir neinum og því skrifa ég um þetta allt saman á öðrum stað.
Ýtið á meira ef þið viljið lesa álit mitt á myndinni.
Read the rest of this entry »
3 Comments »
Ég er ekkert spenntur fyrir nýju Matrix myndinni. Ekkert svona eins og maður var t.d. fyrir Two Towers fyrir síðustu jól. Samt hugsa ég þó að þessi mynd sé með klikkuðum bardagaatriðum en sagan og það er annað mál.
Svo kemur þriðja myndin bara rétt fyrir jól og fer því head to head við þriðju Hringadróttinssöguna. Það verður eitthvað.
4 Comments »
Bryndís vildi endilega horfa á myndina The Hot Chick. Alveg var ég búinn að sjá það út að þetta væri sorp sem væri lítið vit í.
Vissulega var ekkert vit í þessu en þó var nú hægt að brosa aðeins af vitleysunni. Rob Schneider hefur einhvern eiginleika sem fer illa í mig og mér líkar alls ekkert við en eitthvað kemur þó á móti sem mér líkar við. Í myndinni leikur Adam Sandler pínulítið hlutverk og hann er eiginlega versti leikari myndarinnar fyrir það hlutverk og af þeim er sko nóg. Happy Madison framleiðslufyrirtæki Sandlers einmitt gerir þessa mynd en þó var rúsínan í pylsuendanum engin önnur en Ungfrú égætlaaðmeikaþaðíhollywood sem í daglegu tali kallast Berglind Ólafsdóttir. Hún er þarna að leika strippara, er á skjánum í ca 8 sekúndur við hlið Sandlers með allt niðrum sig.
Myndin er ekkert spes og ekkert vera að eyða tímanum í hana. Notið frekar tækifærið og horfið á The Pianist eða til að horfa á Phone Booth
2 Comments »
Guðjón þessi elska bauð mér í gær á X-Men 2. Myndin er ágætis sumarsmellur ef svo mætti segja. Rennur ljúflega í gegn og er bara ansi vel gerð. Myndin er dökk og minnir á Empire Strikes Back þó snilldin sé ekki sú sama.
X-Men 3 má þá koma núna.
No Comments »
Alveg var ég búinn að gleyma hvað Maður eins og ég er góð mynd. Þorsteinn Guðmundsson er algjör snillingur í þessari mynd og karakterinn sem hann leikur er rosalegur. Jón Gnarr er bara Jón Gnarr og Siggi Sigurjóns er góður.
Skil ekki enn þá sem fannst ekki mikið til þessarar myndar koma því mér finnst hún alveg rosalega góð. Hlakka mikið til að sjá næstu mynd Roberts Douglas.
3 Comments »
Eins og Óskarinn er almennt fyrirsjáanleg athöfn að þá var ég rosalega ánægður að sjá Adrien Brody, Roman Polanski og Michael Moore alla fá styttu.
Adrien Brody leikur listavel í The Pianist og á ekkert skilið nema þessa styttu. Hlakka til að sjá hann í fleiri myndum.
Polanski á Óskarinn skilin fyrir að hafa gert myndina The Pianist sem fjallar um píanistann Wladyslaw Szpilman sem missir allt sitt þegar Þjóðverjar ráðast inní Pólland og flytja Szpilman ásamt öllum öðrum gyðingum í ghettóið. Ótrúleg sjón að sjá hvernig sálin er brotin niður og að sjá hann svo lifna aftur við þegar hann nær að sleppa og vera í felum. Polanski sjálfur upplifði að lifa í ghettóinu og nær því að segja vel frá þessu. Myndina ættu allir að sjá en þó er nokkuð um ljótt ofbeldi enda lítið annað hægt en að sýna sannleikann eins og hann er í svona mynd.
Michael Moore sem ég hef oft talað um fékk svo Óskarinn fyrir Bowling for Columbine, heimildarmynd um byssueign Bandaríkjamanna sem vissulega er sláandi. Ótrúlegt allt saman hvernig þetta kerfi þeirra virkar og allt er það að þakka að NRA (National Rifle Association) er sterkasti þrýstihópurinn í Washington með gamla brýnið Charlton Heston í fararbroddi. Moore einmitt tekur Heston í nefið í myndinni og Heston er eins og gamall nasisti sem trúir á ekkert annað en að þetta sé rétt og engin rök hagga við manninum. Ljót sjón að sjá hjá svona merkum manni. NRA hafa náð að fella næstum öll byssulög sem komið hafa fram á þingi þeirra Bandaríkjamanna. Gun Control er næstum því eins og bannorð á Capitol Hill.
1 Comment »
Þessi mynd er nú meira ruslið. Var eins og lélegur sjónvarpsþáttur með asnalegri tónlist sem rann í gegn en þó var Norah Jones með eina góða innslagið. Skil ekki enn hví ég var að horfa á þetta en það sem maður lætur plata sig útí.
Maid in Manhattan fær 10 hor í einkunn eins og John Ingi sagði um árið.
7 Comments »