Archive for the “Netið” Category

Það er til svo mikið af vitlausu (fáfróðu) fólki sem kannski veit ekki betur en gerir samt hluti sem manni dettur ekki til hugar að gera sjálfum.

Maður á t.d. ekki að sprauta sig með silikoni til að fá stærri brjóst. Sérstaklega ekki ef maður er karlmaður og það kynskiptingur í þokkabót.

Þessi frétt fékk mig til að hlæja og virkaði betur en fyrsti kaffibollinn.

Comments 1 Comment »

Jói skrifar um að lénið starwars.is sé komið á vefþjóninn hans.

Að þetta lén hafi verið dautt til fjölda ára hefur alltaf verið þyrnir í mínum augum. Finnst vita gagnslaust að hafa svona gott lén týnt og tröllum gefið og allt sem hefur verið gert við það hefur verið ljótt og til þess fallið að mistakast út á þeirri forsendu að Star Wars er svo vinsælt að snilld þarf að gera ef þetta eigi að slá í gegn.

Það ætti að vera auðvelt að láta þessa síðu ganga. Ekki gera fréttasíðu þar sem Theforce rústar allri samkeppni í þeirri deild. Official síðan er mjög góð, vel uppfærð og vel við haldið. Það sem ætti að gera við starwars.is er að nota þetta sem höbb fyrir íslendinga að komast útá netið í tengslum við Star Wars. Það ætti t.d. að hafa rss feed af Theforce, Crymogæa ætti að vera sýnileg og allt það sem viðkemur íslendingum og Star Wars.

Og nú megið þið geispa fyrir að hafa lesið þetta.

Comments 3 Comments »

gummijoh.net is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!