Hér var færsla skrifuð í Windows Live Writer en vegna tæknilegra örðugleika kom hún vitlaust út.
ISO-8859-1 og UTF-8 eru ekki vinir. Helvítis staðlar og tækni jargon. Nenni ekki að spá í þessu fyrr en seinna.
Hér var færsla skrifuð í Windows Live Writer en vegna tæknilegra örðugleika kom hún vitlaust út.
ISO-8859-1 og UTF-8 eru ekki vinir. Helvítis staðlar og tækni jargon. Nenni ekki að spá í þessu fyrr en seinna.
GPS lúðar Íslands sameinist.
Addi og Levy, sem ég báðir eru félagar mínir bara úr sitthvorri áttinni eru í gangi með alveg fáránlega sniðugann leik en hann er þó bara fyrir þá sem eiga eða hafa aðgang að GPS tæki.
Sjá meira hér.
Með mikilli einföldun mætti kalla þetta GPS ratleik með smá twist og súru bragði.
Fyrir þá sem eiga ekki GPS tæki má þó skoða videoin á síðunni þeirra, þau eru skemmtileg.
Þegar maður á að vera farin í háttinn að þá fær maður oft hugmynd í kollinn sem þarf að framkvæma STRAX. Þegar ég sá picture to html að þá varð ég auðvitað að prufa.
Það er í raun búið að bora í flækjurnar á þessari síðu og skella intercooler í hana því að núna er allt miklu hraðara.
Egill tölvusnillingur og heiðursmaður var að fikta hitt og þetta bakvið húddið og núna er allt dynamic á síðunni og gerist nokkurn veginn í rauntíma. Tekur bara einn tveir og þrír að rebuilda allt dótið, komið í grunn og cacheað bara eins og vindurinn. Komment hafa breyst en eftir dynamic breytinga virka nýjustu komment ekki sem stendur, okkur sýnist það vera böggur í MovableType.
Gaman að þessu, svo er bara að rendera kótjékkið og allir sáttir?
Eins og mér finnst nýji naggurinn frábær og það allt að þá er þetta mikkivefur dót bara andskoti hægt finnst mér.
Langir loading tímar, eitthvað sem molarnir hans Bjarna höfðu ekki. En þó voru þeir vissulega illa uppfærðir en mikk dótið er það. Plúsar og mínusar í þessu öllu.
Ég reyndar nota Live Bookmarks fídusinn í Firefox þannig að hann segir mér hvenær hvaða blogg var uppfært, sem er auðvitað bara tær snilld.
Síðustu dagar hafa valdið miklum tilfinningasveiflum hjá mér. Harði diskurinn þar sem allt mp3 safnið mitt er ákvað að deyja drottni sínum og ég þar með tónlistarlaus. Eina lagið sem ég átti allt í einu var Hagavagninn sem ég downloadaði af síðunni hans Guffa fyrir einhverju síðan og skellti á desktoppið.
Þrátt fyrir allt er diskurinn blessaður bara dáinn. Biosinn finnur hann ekki einu sinni. Búin að prufa að henda honum yfir á annan controller ásamt þúsund öðrum trixum og lausnum sem að allskonar nördar hafa bent manni á.
Sem betur fer á maður backup í Bogahlíðinni eða ca 90% af efninu og svo mun Itunes einfaldlega segja mér hvað vantar uppá þannig að þetta er ekki endaloks alheimsins en Guð blessi Ipodinn minn þar sem hann hefur bjargað nætursvefninum í staðinn fyrir Itunes.
Ég óska þess að þetta hendi ekki nokkurn mann, að tapa svona yndinu sínu sem tónlistin er.
Eftir að ég fékk Ipoddinn minn að þá hefur Itrip apparatið alveg gert Ipod að betra tæki.
Itrip er lítill FM sendir sem settur tengdur er við Ipod og svo vel ég bara lausa FM tíðni og Ipod spilast á þeirri tíðni í næsta útvarpi. Þetta hentar sérstaklega vel í bílnum þar ég er ekki með geislaspilara í Lafðinni. Núna get ég tekið rúnt á Selfoss uppá gamanið vitandi það að ég get hlustað á heilu diskana og bara verið minn eigin plötusnúður á einfaldan hátt.
Þær tíðnir sem mér hefur þótt best að nota eru 88,0 og 91,2. Hallast að 91,2 frekar þar sem hún virðist ekki vera eins næm fyrir truflunum. Best væri auðvitað að finna tíðni í 100 skalanum sem hægt væri að nota því þar myndu bestu gæðin vera en ég hef hreinlega ekki nennt því.
Eina sem ég hef fundð að Itrip er að þetta étur rafhlöðuna töluvert en bílahleðslutæki ætti að tækla það og svo er Bústaðavegur bann svæði en ég fæ truflanir í hvert skipti sem ég keyri þar í gegn sem er bara ansi oft eða næstum á hverjum degi.
En samt er þetta ómissandi tæki finnst mér sem gerir Ipod að enn betra tæki. Myndin sýndir eldri týpuna, munurinn útlitslega séð er samt vart sjáanlegur.

Ipodinn minn kom í gærkvöldi. Hann er fallegur, mjög fallegur. Hann er heima í hleðslu og í kvöld verður dundað sér við að setja inn góð lög inná hann. Ekkk eins og maður þurfi eitthvað að sortera mikið hvað eigi að fara inn þegar að 20gb komast þarna inn í einum rikk.
Hlakka líka mikið til að prufa Itrip græjuna mína frá Griffin. Er orðin langþreyttur á útvarpi hér á Íslandi og ég þarf þá ekki að fá mér geislaspilara í Lafðina. Núna tekur maður rúnta til Hellu og Borgarness bara afþví að maður hefur nóg af góðri tónlist.
Zempt virðist vera málið. Var að reyna að nota eitthvað sem heitir w.bloggar, forrit sem svipar til BlogBuddy sem Fúsi frændi gerði hér um árið.
w.bloggar ætlar sér bara ekkert að virka og kemur með endalaus villuboð en Zempt sem virðist virka eins er að virka bara mjög vel. Er þá ekki háður því að nota vefumhverfið í MovableType heldur get notað þetta forrit og gert allt það sem ég vil gera, sem er mjög gott því að í Firebird virka ekki text formatting takkarnir eins og í IE.
Um daginn var ég að bulla eitthvað um að ég væri að fara að fá Sony Ericsson T610. Það breyttist heldur betur og fékk ég Sony Ericsson Z600 í staðin sem er bara miklu flottari. Hann hefur alla fídusana sem T610 hefur og það sem meira er, hann er með grilljón sinnum flottari skjá.
Fékk hann á Þorláksmessu og hef verið að tapa mér eilítið í hringitónunum eftir þetta, gerðist meira að segja flaming gay og fékk mér Wuthering Heights með Kate Bush sem hringitón, það verður að teljast flott.
Helvítis tölvudót.
Ég hugsa að þetta sé eitthvað bull í sambandi við SoundBlaster Live hljóðkortið mitt og VIA kubbasettið á móðurborðinu mínu því að í hvert skipti sem ég keyri upp Winamp eða Itunes fer tölvan að haga sér svona skringilega.
Öll önnur keyrsla er bara nokkuð spök og góð. Hitavandamálið er ekki neitt vandamál þar sem hitinn er bara ekkert mikill. Svo er ég búinn að defragmenta öll drifin. Búinn að taka til í services og slökka á því sem að ég tel mig geta lifað án.
Einhverjar aðrar hugmyndir?
Það er held ég sumar í tölvunni minni. Allaveganna þætti mér gott að fá einhver comment frá tölvunörda crowdinu sem að les síðuna mína. Á Kleppsveginum þar sem tölvan mín hefur verið síðast liðinn mánuð hefur hún verið eins og draumur. Bara hagað sér alveg rosalega vel og allt multi-tasking bara svínvirkað. Núna er ég aftur komin heim á Jóh setrið og núna tekur hún upp á því að haga sér illa þegar ég t.d. er að nota póstforrit, skoða heimasíður og hlusta á mp3. Lögin jittera, bara hökta í spilun voða leiðinlega og tölvan er bara eitthvað hæg. Mér dettur helst í huga hitavandamál. Bæta við viftu í tölvuna og þá ætti þetta að lagast. Hvað haldið þið?? Til að Valur og Toggi spari kommentin sín að þá get ég sagt ykkur tveimur að ég er búinn að kótékka databeisið og rendera. Ok. ![]()
Fyrst að ég á ekki Makka að þá kemur bara Makkinn til mín. Apple voru að gefa út Itunes snilldina fyrir Windows stýrikerfi. Það verður að teljast andskoti æðislegt. Hlakka til að prufa þetta. Get núna verið með allt MP3 safnið mitt á einum stað og fylgst með öllu í góðu glensi.
Hef aðeins verið að pæla í að setja upp Linux á heimavélina mína og reyna að nota það eingöngu í staðin fyrir Windows XP Pro sem ég nota núna.
Það ætti ekki að vera neitt mál þar sem ég spila enga leiki á PC lengur og öll forrit sem ég þarf eru til á Linux. Það væri held ég merkilega gaman að prufa að breyta yfir, maður sem er gjörsamlega reynslulaus þegar kemur að Linux. Prufaði SUSE fyrir mörgum árum en hætti strax að nota það þar sem Linux var ekki á því að finna 56k winmodemið mitt. Þar sem ég komst ekki á netið var ég lítið að spá í því að nota það og eyddi því út.
Núna er ég að spá í setja upp eitthvað distro og skrifa á netið hvernig það er fyrir Microsoft manninn að fara alveg yfir í Linux umhverfi. Eina sem mig vantar að vita er hvaða forrit sé best að nota. Nokkrar spurningar sem ég hef verið að spá í er t.d.
Get ég notað einhvern client sem virkar á MSN?
Hvað er besta FTP forritið? (vil gluggaumhverfi, ekki neitt console dót)?
Hvaða distró er eiginlega best að nota? (redhat, mandrake,suse eða hvað?)
Hvað er besta brennara forritið? (bin/cue, vcd, mp3 og data)
Hvað er besta ftp server forritið?
Skipti út Outlook um daginn og setti upp Mozilla Thunderbird í staðin. Það gengur bara mjög vel og ekkert vont um það að segja.
Nýjasta útgáfan sem er release 0,2 er aðeins betri en 0,1 verð ég að segja við fyrstu sýn. Þó var helvítis bras að ná í útgáfu sem virkaði. Fékk alltaf CRC error þegar ég keyrði þetta upp og þurfti að finna einhvern mirror í Danmörku. Gekk þó upp að lokum og allt virkaði vel.
Thunderbird er hraðari en Outlook og ekki eins seinn og asnalegur. Reglur og annað svínvirkar en lítið annað sem ég hef um forritið að segja svona eftir stutta notkun. Sé þó ekkert eftir að hafa skipt.
Núna eru bara allir að Xbox væðast. Allt gærkvöldið fór í það að redda Xboxinu hans Árna og hans Óla bróður.
Ég er þessa dagana alveg að tapa mér í að spila eldgamla tölvuleiki. Maður fer svona í fimm mínutur í gamlan leik og manni líður bara fantavel. Minnir mann vissulega á að ég átti aldrei Nintendo tölvu og minningarnar um allan þann tíma sem maður eyddi á Eyjabakka hjá Helga Davíð við að spila tölvuleiki í Nintendo tölvunni hans. Snilldin ein.
Vinna síðustu daga hefur farið í það að aðstoða fólk við að losna við vírusa og hvar það skuli fá sér eldvegg. Merkilegt hvað fjölmiðlar hafa mikil áhrif. Gamall maður kemur til mín. Hann er með ISDN tengingu og hann hafði keypt eldvegg hjá EJS. Ekki eitthvað forrit heldur alvöru fyrirtækja eldvegg á tugi þúsunda og sölumönnum EJS datt ekki til hugar að spyrja blessaðann manninn hvað hann hafði í huga heldur bara straujuðu kortið. Ég talaði við EJS og lét þá taka við þessu til baka og sagði honum að ná í Zonealarm, það kostaði ekki neitt. Hann var gífurlega þakklátur blessaður maðurinn.
Eftir að ég setti um emulatora á xboxið hefur Bryndís loksins látið þetta tæki einhverju skipta.
Hún getur spilað Bobble Bubble með mér núna. Snilldin ein að spila þetta í smá stund. Svo er bara að plata hana í Turtles leiki og Double Dragon.

Þeir sem eru að lenda í vírusnum sem er að tröllríða öllu er bent á að fara hingað og ná í forrit til að hreina þetta út og fylgja leiðbeiningum til að þetta komi ekki aftur fyrir.
Ekki hringja í mig. Þessi vírus reyndar hefur bara áhrif á tölvur sem keyra Windows 2000 og Windows XP þannig að 95,98 og ME fólk þarf ekki að hafa áhyggjur. Það hefði mátt fylgja með í fréttum finnst mér í stað þess að allir fái panic attack.
Hvílíka snilldin sem ég var að gera núna. Tók Alcatel Speed Touch Home módemið mitt og braut það upp og uppfærði firmwareið og þá er þetta orðið að Alcatel Speed Touch Pro.
Módemið mitt er því orðið að router og það mjög góðum router sem Síminn hefur selt í fjöldamörg ár. Þetta var í raun nokkuð einfalt en hann Sævar sem vinnur með mér fær miklar þakkir fyrir að hafa kunnað þetta og sýnt mér þetta.
Virkilega virkilega sniðugt. Áhugasömum er t.d. bent á weethet.nl en þar má finna leiðbeiningar og öll tól til þess að gera þetta. Þó má benda á að ef eitthvað mistekst gæti módemið verið ónýtt og ekki hægt að laga það nema með því að senda það út.
Prufaði aðeins sms bloggið í dag. Hrafnkell og Már eiga heiður skilin og gott klapp á öxlina skilið fyrir þessa snilld. Býð þeim pottþétt uppá bjór ef ég hitti þá á förnum vegi. Veit reyndar ekki hvernig Hrafnkell lítur út en því má kippa í liðinn.
Þetta sms blogg er virkilega sniðugt. Þarf aðeins að lesa betur hvernig það virkar að framkalla Íslenska stafi og þarf að læra hvernig maður sendir nokkur sms til að fá eina stóra færslu. Strætóferðir heim úr vinnu eru kjörin vettvangur fyrir þessi blogg ásamt mörgum öðrum tækifærum. Það mætti eiginlega segja að sms blogg væru hálfgerð tækifærisblogg. Maður bloggar svona augnablikið held ég því maður þarf ekki að bíða eftir því að komast í tölvu.