Nú standa yfir blússandi framkvæmdir á bújörð Jóh klansins fyrir austan fjall. Grunnar fyrir bæði húsin sem heita auðvitað Blanda og Bakki eru að rísa hraðar en sólin og var ég eins og Bubbi Byggir að járnabinda og smíða í allan gærdag. Þyrpingin mun svo að sjálfsögðu í daglegu tali verða kölluð Jóh setrið. Það kemur ekkert annað til greina.
Ég var að smíða. Segi það aftur, SMÍÐA. Ég hef ekki haldið á hamri síðan í 9.bekk hjá Benóný en sýndi ótrúlega takta í gær þegar að ég klæddi vegginn á Blöndu. Smíðameistarinn Árni var undir lokin alveg hættur að segja mér til og gagnrýna mín smíðastörf sem segir okkur auðvitað aðeins eitt. Ég er fæddur smiður.
Það verður rosalega gaman þegar að þetta fer að taka á sig mynd. Þetta er það stutt frá höfuðborginni að maður mun alveg nenna að skjótast í mat og kaffi og útsýnið þarna er rugl.
það er ekki fyrr en þú byrjar að reykja og segja samfarasögur sem þú getur kallað þig smið, það tók mig fjögur ár að ná rétta flæðinu í pjásusögum ein helgi fyrir austan er ekki nóg.
p.s. reykktu camel filters þær eru bestar
Þetta er nú meira ruglið, ég var alltaf að segja pjásusögur og reykjandi Camel þegar ég var í smíði í Breiðholtsskóla, samt féll ég.
dóri, áttir þú ekki kött sem hét pjása?
Það kemur ekki annað til greina en ég rífi mótin frá. annars verð ég brjálaður.
Gestur þú færð þann heiður að gera það.
Rífa frá – I love it.
Geggjað! Til hamingju með þetta Gumminn minn. Eins gott að þú ert með þvaglegginn við smíðarnar. Þá þarftu ekki að taka pásur til að fara á klósett.