Mér finnst stundum eins og ég sé andamamma með tvo unga í eftirdragi í nágrenni tjarnarinnar. Ungarnir tveir heita Arnar og Hlynur.
Í gær þreif ég baðið, vaskaði upp, eldaði ítalskar kjötbollur sem voru RUGL og skellti í eina vél.
Tölum meira um þessar kjötbollur. Ég var í búð í gær að reyna að fá hugmyndir að mat. Ég ákvað að gera þessar kjötbollur bara útí bláinn án uppskriftar og þær voru hrikalegar góðar. Arnar hélt eflaust að ég væri þroskaheftur þegar ég settist niður inni í stofu með skál fulla af nautahakki, eggi, hvítlauk (skiptir miklu máli), basil og pipar, brauðmolum ásamt leynikryddinu og byrjaði að mauka þessu saman með berum höndum.
Steikt á pönnu og látið malla með tómötum, meira kryddi og parmsean skellt yfir. Betra en kjötbollurétturinn á Ítalíu og vel það.
úff hvað þetta hljómar vel! ..þú ert alveg gífurlega liðtækur í eldhúsinu Gummi 🙂 – settiru það ekki örugglega í einkamálaauglýsinguna? 😉
hey, er leinikryddið…BBQ