Velkomnir barnalands lesendur,
Brynja Börk getur stundum verið sniðug, stundum. Svona þegar hún er ekki alltaf að tala um hvað Guðjón sé sætur og fallegur. Get a room.
Hún bloggaði fyndið og gott blogg þar sem hún mærir mig, Dóra og Hlyn og hristir hausinn yfir því að við séum einhleypir.
Það blogg hennar endar svo á barnalandi, þeirri gróðrastíu fræðslu og fróðleiks þar sem við erum ræddir. Dóri gæti verið að fá skalla skv. athugulum notendum barnalands, þær eru búnar að komast að því að Sexy Beast sé um mig og Hlynur er ekki nógu röff gaur. Allt á nokkrum dögum.
Brynja 1 / Dóri og Gummi 1. Hlynur er fórnarlamb aðstæðna. Verður gaman að sjá hvað gerist næst í þessum æsilega spennandi leik.
Við erum ekki gengnir út, barnaland hefur klikkað þar.
Til hamingju með að vera það mikið celeb að komast í umræður á barnalandi! ég er stoltur af ykkur og mér finnst að þið ættuð að gefa Brynju Björk fallegan blómvönd fyrir þetta!
Skil ekki hvernig ég blandaðist inn í þetta. Reyndar lét hún rangt símanúmer hjá mér inn á síðuna sína sem mér ljáðist að leiðrétta. Ætli það hafi verið með vilja gert? Eruð þið búnir að komast að því hvaða notandanafn Brynja Björk er með á Barnalandi? Er Dóri í raun og veru að fá skalla? Það er fullt af samsæriskenningum í gangi…
Skalla? Varla… en gráhærður, já því miður.
hvern ykkar langar að vera með konu sem tekur virkan þátt í umræðunum á barnalandi?
ég sé að Hlynur tekur þetta röfftöff dáldið nærri sér hehehe sé fram á að hann þræði leðurbúðir bæjarins og liti hárið á sér svart með þessu áframhaldi
Ég er alsaklaus af barnalandslinknum ógurlega en veit fyrir víst að fjöldi kvenna þarna les síðuna mína reglulega. Þær fróa sér yfir lífi mínu á hverjum degi og stofna síðan umræðuþræði um það. Þannig að það kom mér ekki á óvart að myndarlegu piparsveinarnir mínir enduðu við áttunda hlið helvítis, s.s barnaland.is
Þetta með Guðjón….ég vil bara benda á þessa mynd máli mínu til stuðnings….
maðurinn er klárlega heitari en allt.
Nei Brynja, hann er með svip eins og hann sé að kúka. Það er ekki heitt.
Þess þá heldur. Ef maðurinn lítur svona út á dollunni þá hlýt ég að vera vel gift.
mmmmmmmmmmm hægðir
Mér fannst best sú ályktun barnalandsnotenda að það hlyti að vera eitthvað að ykkur, svona fjallmyndarlegir en samt á lausu 😉
Ég vildi óska þess að ég væri svona heitur þegar ég er að kúka, ég tárast bara og verð allur rauður og asnalegur í framan.
En svona er þetta bara… blessun Guðs hvílir ekki á öllum, því miður.
já er það ekki orðið frekar þreytt? að það hljóti að vera eitthvað AÐ einhleypu fólki? 🙂 við gerum bara kröfur!! 🙂
svo er kannski eitthvað að manni, það getur svosum vel verið..
Þú ert með svo háar kröfur ekki skrítið að þú hafir ekki gengið út, það þýðir ekki að bíða eftir mér endalaust 😉