Sá ótrúlegi atburður gerðist í gær að það náðist mynd af nokkrum af merkustu konum Íslandssögunnar á mynd og það saman. Hér er ekki um að ræða nein Photoshop trikk eða tölvuvinnslu af neinni gerð heldur gerðist bara sá ótrúlegi hlutur að þær voru allar staddar á sama stað á sama tíma. Ég hélt reyndar að það væri bannað svipað eins og okkur bræðrum er bannað að fara í flugvél saman, það yrði of mikill missir að Kiddi Jóh, Óli Jóh og Gummi Jóh myndu farast í flugslysi.
Myndin er tekin í íþróttahúsinu að Austubergi í Breiðholti. Ég setti nokkra hringi til að benda á aðalatriðin og smá atriðin. Blár hringur bendir á aðalatriði og rauður bendir á aukatriði. Ég blurraði alla aukaleikara sem koma myndinni ekkert við.
Við byrjum frá hægri og á aðalatriðunum
1. Mamma Jóh sjálf.
2. Ragnar Þorsteinsson, fyrrum kennari minn í Breiðholtsskóla, skólastjóri Breiðholtsskóla og nýráðinn sviðsstjóri menntasviðs Reykjavíkurborgar.
3. Vigdís Finnbogadóttir , fyrrum forseti Íslenska lýðveldisins.
4. Guðrún Kristjánsdóttir, tengdamamma Kidda Jóh og amma Heklu Dísar og Vöku Líf, guðdætra minna.
Smáatriði:
1. Mamma Joh er í BETRA BREIÐHOLT bol eins og Drengjakór Breiðholts kom fram í þegar hann tróð upp í Kastljósi. Það er fleirum annt um Breiðholtið en bara mér, mamma gengur stolt í þessum bol.
Og þessi í gráa jakkanum sem snýr baki við okkur er Sendiherra frakka. En hún skiptir nú engu máli, enda ekkert merkileg.
Maður finnur kraftinn þarna eins og í partíi hjá Loga geimgengli.
Og svo er Guðrún Kristjánsdóttir borgarstjórafrú eins og Hekla Dís kemst svo skemmtilega að orði.
Hún Guðrún er líka kennari og kenndi í þeim fræga og merka skóla sem kenndur er við Rima.
Yndisleg Kona