Unglingurinn á heimilinu fékk leyfi foreldra sinna til að halda partý í kvöld fyrir vini sína úr skólanum. Það eru blendnar tilfinningar fyrir þessu partýi enda fyrsta partýið sem sonurinn fær að halda. Ég hef heldur ekki hitt alla þessa vini hans og veit því ekki hverra manna þeir eru né neitt slíkt. Þeir sem ég hef hitt eru þó fínustu krakkar og því á ég ekki von á öðru en að þetta verði góður hópur sem borðar snakk og horfir á video í kvöld.
Ég mun færa stellið úr stofunni og inn í svefnherbergið, annars treysti ég krökkunum.