Þúsundþjalasmiðurinn og ofurmaðurinn Ívar Örn Helgason er maður dagsins, vikunnar, mánaðarins ef ekki ársins.
Hann fór langt út fyrir hinn byggilega heim í að græja og gera fyrir mig og fyrir það er ég óendanlega þakklátur. Það er gott af vita af svona mönnum. Reyndar er maður umkringdur góðum vinum allt árið í kring en Ívar stendur uppúr akkúrat núna.
Takk Íbbi frotte, takk!
En hvað með Viddann, alltaf að tengja fyrir þig routerinn?
Ekki að það komi Ívari neitt við. Efast ekki manngæsku og kosti hans að neinu leiti.
En ég var að stimpla inn síðuna þína áðan og fékk page cannot be displayed eða hvað það nú er. Allt vegna þess að ég skrifaði inn gummijoh.nef
…..Sem í dag verður nýja viðurnefnið mitt fyrir þig 🙂