Ólafur bróðir minn kallar ekkki allt ömmu sína, kannski ekki gott orðalag þar sem hann kallar bara ömmu Dúnu og ömmu Kristínu ömmur sínar. En allaveganna, Óla bróðir minn er óttaleg hetja.
Hann tók sig til blessaður og hljóp hálf maraþon í fyrsta skipti á ævinni á hinum frábæra tíma 1klst og 29mínutur sem var undir þeim markmiðum sem hann hafði sett sér.
Virkilega ánægður með drenginn og á hann klapp á bakið skilið fyrir þennan frábæra árangur. Ég tók mig til og leyfði honum að rasskella mig í PES svona í staðin, annað var ekki hægt.
Óli náði ekki bara góðum tíma heldur hleypur með töff hlaupastíl sem gerir hann að sigurvegara í mínum augum.
Helvíti góð mynd af kappanum hér. Eins og hann sé að hlaupa með þessum saumaklúbb sem er á einhverju lalli bara í góða veðrinu.
Ef einhver var að velta því fyrir sér einhverra hluta vegna að þá get ég upplýst viðkomandi um það að myndin er fengin af hlaup.is

Hvernig værir að þú hreyfðir á þér rassgatið.
Greinilega ættgengir þessir hrikalegu fótleggir…Roberto Carlos hvað!!!
Gestur, þú ert þyngri en ég. Hvernig væri að þú myndir hreyfa á þér rassgatið? Ekki er ég að hvæsa það á þig. Ég elska þig eins og þú ert.
Gestur er þyngri vegna þess að hann er 3 metrar á hæð, það er ekki hægt að bera þetta saman
Vá… á 1:29, það er ROOOOOSALEGA góður tími!!!! Sérstaklega í fyrsta hlaupi!! Er þetta í genunum???