Ég er búin að hafa þrekvirkið Bat out of hell á heilanum núna í nokkra daga. Ég get hreinlega ekki gert upp við mig hvort það sé gott eða vont. Ég hallast þó að því að það sé bara mjög gott enda er lagið hrikaleg rússíbanareið frá byrjun til enda.
Meatloaf er líka með alveg magnaða rödd. Restin af plötunni er ágæt en þó eitthvað sem ég hef ekki alveg melt í gegnum öll þessi ár, finnst platan í heild ekki vera þetta þrekvirki sem hefur sett hana í flokk mestu seldu platna í heimi. Eftir opnunarlagið er einhvern veginn allt á niðurleið.
Set hér inn Bat Out of Hell af tónleikum þar sem Meatloaf tekur lagið og sinfóníuhljómsveit Melbourne spilar undir. Það er kraftur í þessu og ágætis vísun til helgarinnar.
Meatloaf – Bat out of Hell (Live)
hey….
two out of three aint bad, aint bad
svo ekki sé minnst á paradise by the dashboard light, nodge-nodge
ætli þetta sé ekki svona dynamic cult thing!