Ég hvet alla aðdáendur góðrar tónlistar til að hlusta á þáttinn Íslenskar goðsagnir sem að fluttur var á Rás2 á sunnudaginn var. Annar þátturinn tók fyrir Karl Sighvatsson, hljómborðsleikara og organista sem lést 1991. Karl var í Flowers ,Trúbrot og Þursaflokknum svo dæmi séu nefnd og hugmyndasmiðurinn að baki Lifun sem að mínu mati er besta íslenska platan frá upphafi. Fyrsti þátturinn tók fyrir Rúnar Gunnarsson sem lést sömuleiðis langt fyrir aldur fram, Rúnar var einn af afkastamestu dægulagahöfundum þess tíma og samdi meðal annars Það er svo undarlegt með unga menn.
Þátturinn tekur sögu Karls fyrir, við heyrum sögur frá samferðarmönnum hans eins og t.d. Jónasi R. Jónassyni og Agli Ólafssyni. Vel gerðir þættir og mjög eigulegir.
Góð ábending Gummi. Þetta var reyndar annar þátturinn. Fyrsti fjallaði um Rúnar Gunnarsson og var ekki síðri. Þessi þáttur fær alls engan mínus í kladdann hjá mér.
Missti af fyrsta þættinum. Laga bloggið í samræmi! Góð ábending.
Ég hef gerst svo fræg að hafa lært á blokkflautu af Karli Sighvats, það var ekkert grín að vera ca 5 ára og læra hjá honum!