Þegar ég skrifa þessa færslu græt ég í boga, tárin streyma og streyma niður kinnarnar því ég er svo stoltur.
Í annað sinn á þessu tímabili hef ég náð þeim áfanga að vera B-liðs maður vikunnar, það er heiður sem fáum útvöldum hlotnast og ekki er algengt að menn náu þessu oft með stuttu millibili.
Ég deili heiðrinum þessa vikuna með liðinu sem ég spilaði með í fyrri umferð boltans síðastliðinn mánudag. Þeir drengir sem ég spilaði með eru stríðsmenn með hjartað á réttum stað. Við vorum einum færri en börðumst eins og ljón við menn sem svífast einskins inni á vellinum (lesist: BÖB).
Ég er stoltur af þeim og vinum mínum þeim Guffa, Villa og Fannari.
Athyglisvert val. Tapa báðum leikjunum og skora tvö sjálfsmörk en vera samt maður vikunnar. B-liðið er orðið spilltara en FIFA.
Hlynur ég vil benda þér á pistil um þetta mál á heimasíðu B-liðsins.
Ég er með flekklausan feril þetta kvöld er varðar sjálfsmörk, þau eru ekki mín.
Þetta er vel rökstudd og semí hlutlaust mat manna.
Þetta er viðbjóður…….