Góðu gríni ber að hampa. Þó að rót grínsins sé sprottin undan rótum öfundssýki og annarra siðlausra hvata ber samt að hampa því þar sem grínið er afskaplega vel gert.
Guffi á grín dagsins þótt ótrúlegt megi virðast. Hann hefur hingað til verið grínarinn sem skýtur stöngin út og fær engin komment við eitthvað sem honum finnst vera fyndið. En núna sýnist mér hann hafa hitt skotið ágætlega og grínið fékk mig til að öskra úr hlátri.
Guffi litli hristist núna og skelfur af ótta við að íbúar L82 og þá sérstaklega ég skjóti fast og hrottalega til baka, svo fast að Guffi yrði óvígur eftir.
Það mun ekki gerast. En þó hef ég þetta til að segja okkar hlið.
[audio:http://www.simnet.is/gummijoh/ell.mp3%5D
Hahahahaha!