Eru Menningarkvöldin hætt spyr fólk. Ég er nú hræddur um ekki.
Menningarkvöldin á L82, þessi rómuðu kvöld menningar, lista og matar sem eldaður er af natni og alúð hafa svei mér á aldrei verið sterkari.
Myndir sem hafa verið til sýninga síðustu vikurnar er t.d. hin Finnska Ariel eftir Kaurismaki, Gremlins, Basketball Diaries, Mjallhvít og dvergarnir sjö, Ferris Buellers Day Off og svo mætti lengi telja. Það er sem sagt allur skalinn tekinn og myndir úr öllum áttum fá að njóta sín á L82.
Næsta mál á dagskrá er að koma inn myndum af öllum herlegheitunum. Menningarkvöldin eru þannig að gleðinni þarf að dreifa út á við.
Var Hlynur með Mjallhvíti og Ferris Bjúler?
Hlyni átti Mjallhvíti og Gremlins.
Ég átti Ferris.
Mjallhvít er fyrsta teiknimyndin sem var gerð í fullri lengd.
haha… mér finnst bara fyndið að Gummi hafi horft á Mjallhvít. Bauðstu upp á bleika sykurpúða með myndinni?
ferris er hrein snilld 🙂 hef ekki séð mjallhvíti síðan ég var lítil. Og nei, ekki fyrsta disney myndin í fullri lengd, það var Öskubuska
Já nei nei. Mjallhvít kom út 1937 en Öskubuska 1950.
Hey vá ég hélt kannski að þið væruð að taka Nonna og Manna-maraþon. Allavegna er spólan hennar mömmu búin að vera nógu andsk…. lengi á L82.