Nýtt Oasis lag sem er ekki lélegt á alltaf skilið að vera tóndæmi dagsins. Oasis er hljómsveit sem hefur lítið þróast í gegnum árin að mínu mati en hefur sitt „sound“ sem ég hreinlega fíla.
Og ég er að fíla nýja lagið, það er gott sound í því og ég byrja að tromma ósjálfrátt með því sem er alltaf góðs viti í mínum bókum. Þetta eru engin geimflaugavísindi en lagið er gott, punktur.
Fyrir þá sem þola ekki Oasis, að þá er hér myndband þar sem ráðist er á Noel á sviði.
Oasis – The Shock Of The Lightning
Takk fyrir myndbandið. Það huggaði mig.
Á meðan ég gef þeim að sándið þeirra er flott, eru þetta ofmetnustu hrokagikkir sem grúppíur hafa setið. Lagið þeirra er fínt, en þeir eru búnir að gefa það of oft út.
Awsome!
Ég er búin að vera með þetta lag á heilanum síðan ég heyrði það fyrst. Það pirrar mig að svona helvítis idiot séu svona góðir músíkantar.
Sammála Don Pedro 100%